Þú átt mig ein
(Lag / texti: Magnús Þór Sigmundsson / Vilhjálmur Vilhjálmsson)
Þú átt mig ein,
sú ást er hrein.
Og ég vil að þú vitir það nú, þú verður mér trú um öll mín ár.
Ó, mundu mig
er mæðir þig.
Hve lengi tíminn er að líða,
of langt er að bíða uns ég kem heim.
Það er svo einfalt, ég eiga vil þig einn
og segðu ekki að ég sé
aðeins of seinn að sjá það,
að þetta sé ekki til neins.
Ég bið:
Að bólið sé hlýtt er ég birtist og stend þér við hlið.
Sú bæn er mín, ég bið til þín
að þú efist ekki um þessi orð
er ég skrifa um borð.
Ég hugsa heim til þín, ástin mín.
[m.a. á plötunni Vilhjálmur Vilhjálmsson – Dans gleðinnar]














































