Um síðuna

Vefsíðan sem kemur þér hér fyrir sjónir er einkaframtak, hugarfóstur undirritaðs til margra ára. Á henni er að finna viðamiklar heimildir og upplýsingar um íslenska tónlist fyrr og síðar og er hún hugsuð sem safn upplýsinga um flytjendur tónlistar, óháð útbreiðslu, tíma og útgáfu. Markmiðið er m.ö.o. að varðveita sögu einstakra tónlistarmanna, hljómsveita, kóra og annars sem við kemur íslenskri tónlist – hér er því um menningarsögulega varðveislu að ræða.

Framtíð Glatkistunnar er hins vegar óljós, frá því í ágúst 2025 hefur ekkert nýtt efni verið birt á vefsíðunni fyrir utan fréttir af afmælisbörnum dagsins og fáeinar fréttatilkynningar (sem tónlistarfólk og aðrir geta sent inn til birtingar) og er ástæða þess sú að ekki hafa fengist styrkir frá hinu opinbera til að halda starfinu áfram. Vonir um að stjórnvöld menningarmála kæmu með einhverjum hætti að því að styðja við verkefnið eru að engu orðnar og því er líklegast að hér verði látið staðar numið og engu nýju efni verði bætt við, áframhaldandi framlög einstaklinga gætu þó hugsanlega greitt áfram fyrir hýsingu og lén Glatkistunnar svo hún hverfi ekki af sjónarsviðinu. Tíminn verður þó að leiða það í ljós.

Upphaflega hófst þessi vinna sem skrá utan um lítið plötusafn en smám saman hlóð skráin (og plötusafnið) utan á sig og þróaðist yfir í handbók eða skrá yfir útgefna íslenska tónlist, og þar var ekki staðar numið heldur ákveðið að hún næði yfir óútgefna jafnt sem útgefna tónlist. Það var þá sem höfundur gerði sér grein fyrir að slíkur gagnagrunnur færi aldrei á bók, enda var hann orðinn það umfangsmikill að hann ætti hvergi erindi annað en á veraldarvefinn. Aukinheldur hentaði það fullkomlega þar sem slíkt efni er í stöðugri endurnýjun og uppfærslu, og því verður þessari vinnu auðvitað aldrei lokið.

Gagnagrunnurinn er unninn upp úr munnlegum og rituðum heimildum, ekki er vísað í hverja og eina heimild þar sem það á við heldur má sjá allar heimildir á sérsíðu þess efnis. Heimildir eru mis áreiðanlegar eins og gengur og gerist, og því kann sumt í gagnagrunninum að vera beinlínis rangt, vefurinn er þó hugsaður sem gagnvirkur að því leyti að ef lesendur vita betur er sjálfsagt að senda línu, auk þess er íslenskri tónlistarsögu hvergi nærri lokið og því eru allar ábendingar um íslenska flytjendur, hljómsveitir, kóra eða hvaðeina sem fólki dettur í hug, vel þegnar. Allt ritað efni í gagnagrunninum er þó samið af undirrituðum og er því háð höfundarétti. Birting þess á öðrum vettvangi er því bönnuð án leyfis.

Vefsíðan hefur í tvígang verið heiðruð með opinberum hætti, annars vegar haustið 2023 með heiðursverðlaunum Dags íslenskrar tónlistar – Lítill fugl, fyrir að „fjalla um íslenska tónlist og menningu af miklum metnaði og ástríðu um árabil“ og hins vegar haustið 2025 með viðurkenningar Íslenskrar málnefndar „fyrir frumkvæði í að birta alfræðiefni á íslensku á netinu“. Þar fyrir utan berast Glatkistunni reglulega þakkir í rituðu og munnlegu formi frá lesendum síðunnar.

Þeim sem vilja styrkja framtakið og stuðla þar með hugsanlega að áframhaldandi tilveru Glatkistunnar er bent á þessa síðu.

© Helgi J.

23 athugasemdir við “Um síðuna

  1. Jakob Óskar Jónsson hefur verið virkur á sviðinu í hálfa öld. Gerð hefur verið heimasíða um hann. jakoboskar.wix.con/jakob. En jakob lagði sönginn á „hilluna“ á síðasta ári. 2014.

    Líkar við

    • Sæll, takk fyrir þessar upplýsingar – Jakob er nú þegar í gagnagrunninum og bíður þess að það verði unnið úr heimildum um hann þannig að þegar fram líða stundir munu upplýsingar um hann birtast á Glatkistunni. Kv. Helgi J.

      Líkar við

  2. Góðan dag..Smá upplýsingar um La Bella luna and ðe lúní tjúns. Við stofnuðum þessa hljómsveit á Stöð 2 árið 1987. Hún spilaði á öllum helstu skemmtunum Stöðvar 2 á árunum 1987 til 2005. Eftir að flestir lykilmenn hljómsveitarinnar hættu á Stöð 2 hefur dregið heldur úr virkni hljómsveitarinnar en hún er enn dregin fram við hátíðleg tækifæri. Meðal meðlima hafa verið: Þór Freysson gítar . Friðrik Friðrikson gítar.
    Hera Ólafsdóttir söngkona. Björn Vilhjálmsson bassi. Þorgeir Ástvaldsson harmonika. Egill Aðalsteinsson maragas. Börkur B Baldvinsson maragas. Bergsteinn Björgúlfsson trommur og söngur. Þórður Jónsson ásláttur. Hreiðar Júlíusson ásláttur. Heimir Barðason saxófónn. Henning Haraldsson gítar. Finnbogi Péturson madolín. og … frábært framtak þessi síða. kv.Þór

    Líkað af 1 einstaklingur

  3. Sæll Helgi. Ein athugasamd. Haukur Morteins var ári á undan okkur í JJ að spila fyrir Færeyinga. Annað; í fyrstu færslunni sem nú hefur verið fjalægð og ég sakna svolítið. En hún var einhvernvegin svona; „JJ þótti alltaf svolítið á skjön við aðrar unglingahljómsveitir á þessum tíma. En það var rétt, því við spiluðum „gömlu dansana“ og gamla slagara því aðal tekjurnar komu af árshátíðum, Þorrablótum, Hestamanna mótum þar sem allir aldurshópar sóttu. vorum t.d. aldrei í Tjarnarbúð, nema hjá Lionis og slíkum hópum. Og þá þurfti breidd í lagavali til að fá svoleiðis „djobb“. En við vorum allir alltaf í fullri vinnu með spilaríinu. Bestu kveðjur og kærar þakkir fyrir að fá að vera með á þinni flottu og vönduðu síðu. Jón Erlings

    Líkar við

  4. Sæll Helgi. Flott síða og metnaðarfull vinna.
    Rakst á nafn móður minnar Sigurbjargar Petru Hólmgrímsdóttur hjá þér. Fannst það mjög ánægjulegt.
    kv. Þuríður Lilja

    Líkar við

  5. Algjör Biblía – og gífurlega mikilvæg fyrir íslenska tónlistarsögu. Rata oft hingað inn – og tapa mér í hvert sinn.

    Líkar við

  6. Sæll. Takk fyrir góða síðu. Varðandi Fan Houtens Kókó: https://glatkistan.com/2020/10/21/fan-houtens-koko/
    Textarit Fan Houtens Kókó var gefið út af Medúsu í febrúar 1981 og Musique elementaire telst líka útgáfa Medúsu. Anna María Ingadóttir var bassaleikari um hríð sumarið 1981 og er með á kassettunni Það brakar í herra K. Hilmar Örn spilaði á trommur með sveitnni í Þjóðleikhússkjallaranum haustið 1981 og þá kom Sjón fram með sveitinni og líka sem dúettinn Ónýta bókasafnið (með Þór Eldon). Kveðja, Ólafur

    Líkar við

  7. Sæll Helgi. Hljómsveitin Mistök á Núpi 1976-1977. Gítar : Guðjón Ingi Guðmundsson, Bassi Hjalti Garðarsson, Gítar Viðar Kristinsson, Trommur Hilmar, Söngur fyrstu 2-3 mánuðina Óðinn Eininsson. Spilaði á Núpi. Hélt dansleiki á Þingeyri, Flateyri og Bíldudal. Á Bíldudal hafði verið landlega í allmarga daga og þegar Skólinn á Núpi mætti með skólaprógrammið og Mistök á Skemmtikvöld varð afleiðingin eitthvert skemmtilegasta kvöld ( og fjör) sem 17 ára unglingur gat lent í. Brjálað stuð og þurfti svo að ferja mannskaðinn með varðskipi undir morgun aftur á Núp.

    Líkar við

  8. Steinar Viktorsson. spilaði inn á plötuna Eldar brennar með Ásgeiri Hvítaskáli 2008 og nokkur óútgefin lög með ´Ágústi Ragnarsyni

    Líkar við

  9. Komdu sæll Helgi Ég sé hér að þú ert me síðu sem heitir Glatkistan. Takk fyrir góða síðu. Sé að hér er að fynna flesta af mínum geisladiskum. Er þetta síða sem allir geta séð, ? Er ekki alveg með á því. Hef verið búsett í Danmörku síðan 1975. Er hægt að leggja video inn á síðuna, eða heyra lögin ?? bestu kveðjur Gullý Hanna Ragnarsdóttir, Svendborg, Danmörku.

    Líkar við

    • Sæl Gullý Hanna,
      takk fyrir hrósið – Glatkistan er jú síða sem er öllum aðgengileg og þegar fram líða stundir mun hún vonandi hafa að geyma upplýsingar um nánast allt sem viðkemur íslenskri tónlist.
      Ég hef reyndar ekki birt videó á Glatkistunni eða hljóðskrár en ég hef stundum sett inn tengla/linka á Youtube eða aðrar vefsíður á Glatkistuna þannig að það væri e.t.v. hægt að skoða. Sendu mér endilega línu á glatkistan@glatkistan.com varðandi þetta.
      Bestu kveðjur, Helgi J.

      Líkar við

  10. Sæll! Alveg frábær síða og mikill fróðleikur. Hér kemur smá fróðleikur um hljómsveitina Te fyrir tvo.

    Hljómsveitin kom fyrst fram í Þinghólsskóla í Mars 1982. Þá voru meðlimirnir Bragi Valgeirsson söngvari, Ásgeir Pálsson söngvari, Bjarni Sigurbjörnsson bassi og Trausti Jónsson trommur. Í Apríl hætti Bjarni Sigurbjörnsson (listmálari) og Kristján Hallur Leifsson tók við bassanum.

    Í Desember 1982 hættir Trausti Jónson og Pétur Jónsson tekur við kjuðunum. Í sama mánuði spilaði hljómsveitin lengst allra hljómsveita í hljómsveitamaraþoni SATT. Um vorið hættir Ásgeir í hljómsveitinni og inn kemur nýtt hljóðfæri og nýr meðlimur, Aðalsteinn Bjarnþórsson.

    Hljómsveitin hefur haft hljótt um sig síðan um áramótin 83/84.

    Flest laga hljómsveitarinnar voru stutt og án viðlaga. Stysta lagið var 38 sekúndur og það lengsta um 1 og hálf mínuta.

    Líkar við

    • Sæll Rútur.

      Kærar þakkir fyrir þessar upplýsingar, þeim hefur nú verið bætt við umfjöllunina um sveitina, og textinn uppfærður.

      Bestu kveðjur, Helgi J.

      Líkar við

Skildu eftir svar við jonerlings Hætta við svar