Afmælisbörn 23. maí 2024

Kári Þormar

Fimm afmælisbörn koma við sögu í dag:

Kári Þormar (Kárason) kórstjórnandi og organisti er fimmtíu og sex ára gamall í dag. Kári sem í dag er stjórnandi Dómkórsins og organisti kirkjunnar, hefur komið víða við á sínum ferli og starfaði til að mynda við Áskirkju, Fríkirkjuna og víðar. Kári nam orgel- og píanóleik hér heima, auk framhaldsnáms í Þýskalandi.

Árni Vilhjálmsson, kenndur vð FM Belfast á er fjörutíu og fjögurra ára gamall á þessum degi. Árni hefur auk þess að vera í FM Belfast, verið í rappsveitinni Motherfuckers in the house.

Þá á Ágúst Bent (Sigbertsson) fjörutíu og eins árs afmæli í dag. Ágúst Bent sigraði Músíktilraunir árið 2000 með sveit sinni XXX Rottweiler (þá 110 Rottweiler hundar) og var einnig annar meðlima tvíeykisins Bent & 7Berg en hefur einnig starfað með sveitum eins og Hooker swing, Horrible youth, Blues Willis, Truckload of steel o.fl. Hann hefur síðustu árin einbeitt sér að kvikmyndaleikstjórn og tengdum þáttum.

Tómas Magnús Tómasson (Tommi Tomm) bassaleikarinn góðkunni hefði átt afmæli í dag en hann lést árið 2018. Tommi er auðvitað þekktastur fyrir Stuðmannaframlag sitt en hann plokkaði bassann í mun fleiri sveitum, s.s. Amor, Arfa, Þursaflokknum, Fónum, Gæðablóðum, Change, Mods, Bítladrengjunum blíðu, Rifsberju, Snillingunum og Sirkus Homma Homm. Tómas starfaði einnig nokkuð við upptökur.

Einnig hefði Margrét Sighvatsdóttir söngkona og tónskáld átt afmæli á þessum degi en hún lést 2012. Margrét (f. 1930) bjó lengstum í Grindavík en var upphaflega af Rangárvöllunum, hún nam söng hjá Sigurði Demetz, Maríu Markan, Guðrúnu Á. Símonar og fleirum en hún lærði einnig á píanó auk þess að spila á fleiri hljóðfæri. Börn hennar gáfu út plötuna Lögin hennar mömmu í tilefni af áttræðis afmæli hennar 2010.

Vissir þú að Emilíana Torrini var eitt sinn í Gus Gus?