Afmælisbörn 14. ágúst 2023

Ásta Sveinsdóttir

Fjögur afmælisbörn eru á skrá Glatkistunnar í dag:

Stórsöngvarinn Geir Ólafsson á stórafmæli á þessum degi en hann er fimmtugur. Geir eða Ice blue eins og hann er oft kallaður, hefur gefið út nokkrar sólóplötur og plötur með hljómsveit sinni Furstunum, sem samanstendur af tónlistarmönnum í eldri kantinum og er eins konar stórsveit.

Hrönn Svansdóttir söngkona er fjörutíu og níu ára í dag. Hrönn kemur úr gospelgeiranum og hefur verið áberandi t.a.m. í Gospelkór Fíladelfíu, hún hefur sungið inn á fjölmargar plötur og reyndar gefið út eina sólóplötu, Hljóður: við spegilsléttan fjörð, árið 2014.

Daði Georgsson hljóðupptöku- og tónlistarmaður á einnig afmæli en hann er fjörutíu og átta ára. Áður en Daði sneri sér að upptökuferlinum hafði hann spilað á hljómborð í hljómsveitum eins og Áttavillt en einnig í minna þekktum böndum eins og Nova, Riff Reddhedd, Sjáumst í sundi og Dægurlagakombóinu, reyndar eins og margir aðrir.

Ásta Sveinsdóttir lagahöfundur (fædd 1895) átti einnig afmæli þennan dag. Ásta starfaði lengstum sem tónlistarkennari ásamt öðrum störfum en samdi bæði söng- og dægurlög í frístundum sínum, og kom oft við sögu í dægurlagakeppnum SKT. Hún samdi m.a. lög eins og Bláu augun og Rósin mín. Ásta lést 1973.

Vissir þú að um miðjan sjöunda áratuginn var unglingahljómsveit á Siglufirði sem hét Rauðu varðliðarnir?