Á Kanarí

Á Kanarí
(Lag / texti: erlent lag / Hrafn Pálsson)

Á köldum vetri, með konutetri,
er best að koma sér til Kanarí.
Með klæðalitlum og milljón pytlum
er mjög svo gott að skella sér í frí.
(Því) alla daga – á sínum maga
er hægt að sleikja sól við engin ský.
Ó, á Kanarí – ó, á Kanarí.
Kanarí – Kanarí,
kostaeyjan sem kemur mér alltaf í sólskinsskapið.
Kanarí – Kanarí,
þó þú kostir mig fjölmargar krónur og heilsutapið.
Kanarí – Kanarí
ég mun koma heim til þín sérhvert ár, sem ég enn get lapið.
Ó, á Kanarí …

(Því) alla daga – á sínum maga
er hægt að sleikja sól við engin ský.
Ó, á Kanarí – ó, á Kanarí.
Kanarí – Kanarí,
kostaeyjan sem kemur mér alltaf í sólskinsskapið.
Kanarí – Kanarí,
þó þú kostir mig fjölmargar krónur og heilsutapið.
Kanarí – Kanarí
ég mun taka þig langt fram yfir kulda og krap.
Ó, á Kanarí …

[á plötunni Hljómsveit Þorsteins Guðmundssonar – Grásleppu Gvendur]