Svín
(Lag / texti: Sigurjón Kjartansson / Óttar Proppé)
Já sjáðu okkur skríða.
Já sjáðu okkur hlæja.
Sjáðu okkur tína blóm.
Já sjáðu okkur ríða.
Já sjáðu okkur kyssast.
Sjáðu okkur svína okkur út.
Því að við erum svín, við erum svín um fengitímann.
Um fengitímann…
Því að víst verða svín líka ástfangin.
Mennirnir eru ekkert einir um það.
Við erum glaðari en þið öll til samans.
Viðurkennið svínsleg atlot okkar.
Því að við erum svín, við erum svín ástarinnr.
Því að við erum svín, við erum Erosar svín.
Erosar svín.
[af plötunni Ham – Lengi lifi]














































