Þetta er nóg
(Lag / texti: erlent lag / engar upplýsingar um textahöfund)
Sjá snjóinn glitra á fjallinu í nótt,
ekkert fótspor hér að sjá.
Eitt einsemdar konungsríki
og ég virðist, drottningin.
Vindurinn gnauðar eins og ólgan inni í mér.
Gat ei byrgt það inni en ég reyndi samt.
Hleyp þeim ei inn lát þau ei sjá,
vertu góða stelpan sem þú varst.
Feldu, bældu, seg þeim ei frá
en þau vita það þá.
Þetta er nóg, þetta er nóg.
Get ei lengur haldið í mér.
Þetta er nóg, þetta er nóg.
Ég sný burt og skelli á eftir mér.
Mig varðar ei
hvað þau segja við því.
Látið geysa storm,
kuldinn hann hefur ei háð mér neitt.
Merkilegt hvað fjarlægð
gerir allt svo ofursmátt
og hræðslan sem hafði tökin
virðist missa allan mátt.
Ég þarf að sjá hvað ég get gert
og reyna á verk mín umtalsvert.
Og boð og bönn ei halda mér.
Ég er frjáls.
Þetta er nóg, þetta er nóg.
Uppi í himni eins og vindablær.
Þetta er nóg, komið nóg.
Og tár mín enginn sér fær.
Hér ég stend
og hér ég verð.
Látið geysa storm.
Minn máttur þyrlast gegnum loftið niðrá jörð.
Mín sál er hringiða úr frosnum brotamyndum gjörð.
Ein hugsun kristalla sem ískalt sprengigos.
Ég aldrei aftur sný.
Það var sem eitt sinn var.
Þetta er nóg, þetta er nóg.
Og ég rís eins og morgunsól.
Þetta er nóg, þetta er nóg.
Þessi þæga stelpa fór.
Hér ég stend
ein um bjartan dag.
Látið geysa storm.
Kuldinn hann hefur ei háð mér neitt.
[m.a. á plötunni Frozen: Let it go – The complete set – ýmsir]














































