
Emajor
Blússveitin Emajor (E-major) hefur verið starfandi undir því nafni frá því um snemma árs 2023 en áður hafði sveitin gengið undir nafninu Blúsvinir Díönu og starfað um nokkurt skeið undir því nafni.
Emajor skipuðu í byrjun þau Díana Von Ancken (Mama Di) söngkona, Daði Halldórsson gítarleikari, Gautur Þorsteinsson hljómborðsleikari, Steingrímur Bergmann Gunnarsson trommuleikari og Ólafur Friðrik Ægisson bassaleikari, sveitin hafði einmitt tekið upp nýja nafn sitt þegar sá síðast taldi gekk til liðs við hana. Þær breytingar höfðu orðið á sveitinni haustið 2026 að Díana söngkona og Daði gítarleikari höfðu horfið á braut en í þeirra stað voru komin söngkonan Dallilja Sæmundsdóttir og gítarleikararnir Hans Högnason og Samúel Ingi Þórarinsson, og var hún þar með orðin að sextett.
Emajor hefur látið til sín taka á blússviðum höfuðborgarsvæðisins og leikið á stöðum eins og Lemmy, Bryggjunni brugghúsi, Dillon og Djúpinu svo eitthvað sé nefnt en sveitin hefur einnig komið fram s.s. við setningu Blúshátíðar í Reykjavík hjá Krúserklúbbnum. Þá hefur sveitin einnig leikið í Silfurtunglinu í Austurbæjarbíói og í Gamla bíói.














































