Píanistinn Jón Möller starfrækti tvívegis hljómsveitir í eigin nafni á sjöunda áratug síðustu aldar, reyndar var hann í nokkur skipti með djasstríó einnig en þeim tríóum eru gerð skil í sér umfjöllun undir Tríó Jóns Möller.
Sumarið 1963 var Jón með hljómsveit í Sjálfstæðishúsinu við Austurvöll og var að öllum líkindum um tríó að ræða því að í einni heimild er sveitin nefnd Nova tríóið – sem er rangt, ári síðar kom upp sveit með því nafni og kom Jón þar hvergi nærri. Ekki liggja fyrir neinar upplýsingar hverjir léku með Jóni þetta sumar í Sjálfstæðishúsinu en söngkonan Guðrún Frederiksen söng með sveitinni.
Árið 1966 var Jón Möller með aðra sveit en hún lék í sýningum á söngleiknum Allra meina bót sem Njarðvíkurleikhúsið setti á svið í félagsheimilinu Stapa sem þá var nýtekið til starfa, ekki liggja heldur fyrir neinar upplýsingar um hverjir skipuðu sveitina með Jóni eða hver hljóðfæraskipan hennar var, og er því óskað eftir frekari upplýsingum um báðar sveitirnar.














































