Hrókar [1] (1965-66)

Ekki liggja fyrir margar heimildir um unglingahljómsveit sem bar nafnið Hrókar en hún mun hafa starfað í Kópavogi á síðari hluta sjöunda áratugar síðustu aldar.

Fyrir liggur að gítarleikarinn Björgvin Gíslason var einn meðlima Hróka og var þetta hugsanlega fyrsta hljómsveitin sem hann starfaði með en upplýsingar vantar um aðra meðlimi sveitarinnar og er því óskað eftir þeim upplýsingum sem og um hljóðfæraskipan hennar.

Þessi sveit kom fram í Breiðfirðingabúð snemma í desember 1965 og var þá kynnt sem ný hljómsveit en hún spilaði þar ásamt Toxic og Strengjum sem voru öllu þekktari sveitir, Hrókar léku svo aftur í Breiðfirðingabúð um jólahátíðirnar. Af því má ljóst vera að hún lék að minnsta kosti til ársins 1966.