Ískórinn (1988-)

Ískórinn svokallaði er kór sem starfræktur hefur verið um árabil í samfélagi Íslendinga í Osló í Noregi. Kórinn var stofnaður 1988 og gekk framan af undir nafninu Kór Íslendingafélagsins í Osló og síðar Kór Íslendinga í Osló en hin síðari ár hefur hann gengið undir Ískórs-nafninu. Svo virðist sem Ískórinn hafi ekki starfað alveg samfleytt…

Barnakór þjóðkirkjunnar (1994-96)

Barnakór þjóðkirkjunnar virðist hafa starfað um þriggja ára skeið um miðjan tíunda áratug síðustu aldar í Hafnarfirði en Brynhildur Auðbjargardóttir var stjórnandi hans. Glatkistan óskast eftir frekari upplýsingum um þennan kór.

Barna- og unglingakór Hafnarfjarðarkirkju (1990-)

Barna- og unglingakór Hafnarfjarðarkirkju hefur starfað líklega frá haustinu 1990, fyrst undir stjórn Brynhildar Auðbjargardóttur (1990-95) en síðan undir stjórn Hrafnhildar Blomsterberg og Helgu Loftsdóttur. Linda Margrét Sigfúsdóttir tók tímabundið við kórstjórninni fljótlega eftir aldamótin en Helga Loftsdóttir var aftur komin til sögunnar nokkru síðar Kórinn sem skiptist í tvær aðskildar einingar (barna- og unglingakór)…