Afmælisbörn 9. nóvember 2025

Tvö afmælisbörn koma við tónlistarsögu Glatkistunnar á þessum degi: Leó (Reynir) Ólason hljómborðsleikari frá Siglufirði er sjötugur og fagnar því stórafmæli á þessum degi, hann hefur komið víða við á hljómsveitaferli sínum og hefur leikið með sveitum eins og Frum, Hendrix, Vönum mönnum og Miðaldamönnum auk fleiri. Leó hefur jafnframt gefið út efni í eigin…

Afmælisbörn 9. nóvember 2024

Tvö afmælisbörn koma við tónlistarsögu Glatkistunnar á þessum degi: Leó (Reynir) Ólason hljómborðsleikari frá Siglufirði er sextíu og níu ára gamall á þessum degi, hann hefur komið víða við á hljómsveitaferli sínum og hefur leikið með sveitum eins og Frum, Hendrix, Vönum mönnum og Miðaldamönnum auk fleiri. Leó hefur jafnframt gefið út efni í eigin…

Hljómsveit Hauks Sveinbjarnarsonar (1955-57 / 1965)

Fáar heimildir er að finna um hljómsveit harmonikkuleikarans Hauks Sveinbjarnarsonar en hann starfrækti að líkindum tvívegis hljómsveitir í eigin nafni. Hljómsveit Hauks Sveinbjarnarsonar hin fyrri starfaði á árunum 1955 til 57 að því er virðist en Haukur hafði á árunum á undan starfað með S.O.S. sem lék mestmegnis í Árnes- og Rangárvallasýslum en hafði hætt…

Haukur Sveinbjarnarson (1928-2018)

Haukur Sveinbjarnarson (f. 1928) starfaði með og starfrækti hljómsveitir upp úr miðri síðustu öld og að minnsta kosti framundir 1970, hér má nefna t.a.m. S.O.S. og Stereo en einnig hljómsveit/ir í eigin nafni sem m.a. léku á dansleikjum í Selfossbíói á síðari hluta sjötta áratugarins. Hann lék að öllum líkindum á harmonikku á þessum árum…

H.B. kvintettinn [1] (1953-56)

H.B. kvintettinn var hljómsveit sem starfaði á sjötta áratug síðustu aldar en hún var í raun sama sveit og bar nafnið SOS (S.O.S.) en hafði þurft að breyta nafni sínu að beiðni Ríkisútvarpsins. Sveitin var stofnuð 1953 og starfaði til ársins 1956 að minnsta kosti en margt er óljóst í sögu þessarar sveitar. Fyrir liggur…

Stereo (1967-72)

Hljómsveit sem kallaðist Stereo og var ýmist sögð vera kvintett, kvartett og tríó starfaði um nokkurra ára skeið á bítla- og blómaárunum 1967-72 en virðist þó hafa verið nokkuð á skjön við ríkjandi tónlistartísku því sveitin lék gömlu dansana og hefur því væntanlega sérhæft sig í dansleikjum ætluðum örlítið eldri dansleikjagestum. Því miður liggja litlar…

S.O.S. [1] (1951-53)

Hljómsveit sem bar heitið S.O.S. (SOS) og gekk ýmist undir S.O.S. tríó eða kvartett heitinu (jafnvel Danshljómsveit S.O.S.) starfaði snemma á sjötta áratug síðustu aldar, á árunum 1951-53. Þessi sveit starfaði líkast til fyrir austan fjall og spilaði þar mest s.s. í Árnes- og Rangárvallasýslu en einnig á þjóðhátíð í Vestmannaeyjum (1953) og reyndar eitthvað…