Karlakór iðnaðarmanna [1] (1888-1907)

Afar lítið er að finna um Karlakór iðnaðarmanna sem starfaði í Reykjavík að öllum líkindum við lok nítjándu aldar og upphaf þeirrar tuttugustu. Þessi kór var líklega einnig kallaður Söngfélag Reykjavíkur og er því stundum ruglað saman við Söngfélag í Reykjavík sem var reyndar starfrækt nokkru fyrr. Þó liggur fyrir að Karlakór iðnaðarmanna var starfandi…

Karlakór iðnaðarmanna [2] (1929-48)

Karlakór iðnaðarmanna hinn síðari á sér næstum tveggja áratuga sögu á fyrri hluta síðustu aldar. Sú saga hófst með söng nokkurra nemenda við Iðnskólann í Reykjavík í frímínútum og við önnur slík tækifæri í skólanum en lauk með því að kórinn var kominn í fremstu röð kóra á landinu öllu. Upphaf Karlakórs iðnaðarmanna (oft einnig…