Quadro [2] (1996)

Hljómsveitin Quadro var skammlíf sveit starfandi haustið 1996, og lék hugsanlega aðeins í eitt skipti opinberlega – á Cafe Amsterdam. Meðlimir sveitarinnar voru þeir Björgvin Gíslason gítarleikari, Birgir Jóhann Birgisson hljómborðs- og bassaleikari, Hafsteinn Hafsteinsson söngvari og gítarleikari og Rúnar Þór Guðmundsson söngvari og trommuleikari.

Quadro [1] (1985)

Hljómsveitin Quadro starfaði 1985 og keppti það árið í Músíktilraunum Tónabæjar. Quadro mun hafa verið úr Hveragerði en afar takmarkaðar upplýsingar er að finna um sveitina. Meðlimir hennar voru Gústi [?] bassaleikari, Maggi [?] söngvari, Siggi [?] gítarleikari og Birgir [?] trommuleikari. Sveitin var meðal skemmtiatriða á bindindismótinu í Galtalæk sumarið 1985 en mun hafa…