Hljómsveitin Quadro var skammlíf sveit starfandi haustið 1996, og lék hugsanlega aðeins í eitt skipti opinberlega – á Cafe Amsterdam.
Meðlimir sveitarinnar voru þeir Björgvin Gíslason gítarleikari, Birgir Jóhann Birgisson hljómborðs- og bassaleikari, Hafsteinn Hafsteinsson söngvari og gítarleikari og Rúnar Þór Guðmundsson söngvari og trommuleikari.














































