Fjöll sendir frá sér Holur

Fjöll

Hljómsveitin Fjöll hefur nú sent frá sér smáskífu sem ber titilinn „Holur“ en það er fjórða lagið sem hljómsveitin gefur út og verður á væntanlegri plötu hennar.

Holur er afslappað indírokk með óvæntum hliðarskrefum og er það aðgengilegt í tveimur útgáfum, sex mínútna útgáfu sem verður á plötunni og annarri styttri fyrir útvarpsspilun. Báðar útgáfurnar eru nú aðgengilegar á tónlistarveitum, útvarpsútgáfan hér og breiðskífuútgáfan hér.

Hljómsveitin undirbýr sig jafnframt fyrir tónleika, en sveitin mun spila á Lemmy að kvöldi sumardagsins fyrsta, þann 24. apríl næstkomandi. Fjöll er nýkomin úr upptökuferð til Valencia, þar sem lagður var grunnur að fyrstu stóru plötu sveitarinnar sem nú er í vinnslu. Bandið er því í dúndurformi og hlakkar til að kynna nýtt efni á Lemmy.

Fjöll eru þeir Guðmundur Annas Árnason söngvari og hljómborðsleikari, Snorri Gunnarsson söngvari og gítarleikari, Guðmundur Freyr Jónasson gítarleikari, Kristinn Jón Arnarson bassaleikari og Ragnar Þór Ingólfsson trommari.