Fjöll með nýja smáskífu – Waves

Hljómsveitin Fjöll gefur í dag út lagið Waves, sem er annað lagið sem sveitin gefur út af nýrri plötu sem er væntanleg snemma á næsta ári. Upptökuferli plötunnar hófst í Valencia fyrir rúmu ári og hefur bandið unnið að upptökum jafnt og þétt síðan þá. Lagið má heyra á Spotify. Waves er rólegt og vandað…

Fjöll sendir frá sér Holur

Hljómsveitin Fjöll hefur nú sent frá sér smáskífu sem ber titilinn „Holur“ en það er fjórða lagið sem hljómsveitin gefur út og verður á væntanlegri plötu hennar. Holur er afslappað indírokk með óvæntum hliðarskrefum og er það aðgengilegt í tveimur útgáfum, sex mínútna útgáfu sem verður á plötunni og annarri styttri fyrir útvarpsspilun. Báðar útgáfurnar…

Fjöll með smáskífu og tónleika

Hljómsveitin Fjöll gefur í dag út sína þriðju smáskífu á árinu en sveitin hefur undanfarið verið að vinna að upptökum í Hljóðrita ásamt Kristni Sturlusyni, nýja lagið ber heitið Lengi lifir en áður hafði sveitin sent frá sér lögin Festar og Í rokinu. Lengi lifir er nú aðgengilegt á Spotify og hér má nálgast það. …

Vígspá (1999-2003)

Hljómsveitin Vígspá var meðal þeirra fremstu í harðkjarnasenunni sem braust fram með látum í kringum síðustu aldamót, sveitin sendi frá sér fjórar skífur. Stofnun Vígspár átti sér nokkurn aðdraganda en Rúnar Ólafsson trommuleikari, Guðmundur Freyr Jónasson gítarleikari, Valdi [?] Olsen gítarleikari og Árni Jóhannsson bassaleikari ásamt söngvara höfðu starfað saman frá upphafi árs 1998 undir…

Teib (1998-99)

Hafnfirska harðkjarnasveitin Teib var undanfari Vígspár en Teib var stofnuð snemma á árinu 1998. Meðlimir sveitarinnar voru Rúnar Ólafsson trymbill, Valdi Olsen gítarleikari, Árni [?] bassaleikari, Gauti [?] söngvari og Guðmundur Freyr Jónasson gítarleikari. Gauti var ekki lengi í Teib og um tíma var ónafngreindur söngvari frá Ísafirði í sveitinni, Bóas Hallgrímsson (Spitsign) tók við…