Hljómsveitin Fjöll gefur í dag út lagið Waves, sem er annað lagið sem sveitin gefur út af nýrri plötu sem er væntanleg snemma á næsta ári. Upptökuferli plötunnar hófst í Valencia fyrir rúmu ári og hefur bandið unnið að upptökum jafnt og þétt síðan þá. Lagið má heyra á Spotify.
Waves er rólegt og vandað indírokk að hætti hússins þar sem fjallað er um tengslin sem við eigum við hvort annað í lífsins ólgusjó. Við stígum ölduna í gegnum súrt og sætt og þótt við villumst af leið eru alltaf einhverjir sem hjálpa okkur að finna rétta braut.
Fjöll eru þeir Guðmundur Annas Árnason söngvari, hljómborðs- og munnhörpuleikari, Snorri Gunnarsson gítarleikari og söngvari, Guðmundur Freyr Jónasson gítarleikari, Kristinn Jón Arnarson bassaleikari og Ragnar Þór Ingólfsson trommari.
Hljómsveitin hefur verið starfandi um nokkurra ára skeið en Guðmundur, Snorri og Kristinn hafa starfað saman í 30 ár frá því að þeir voru í hljómsveitinni Soma sem náði töluverðum vinsældum seint í níunni. Ragnar spilaði með hljómsveitunum Guði gleymdir og Los, einnig í níunni en tók sér svo hlé þar til Fjöll komu honum aftur á bak við settið. Guðmundur Freyr spilaði m.a. í hljómsveitinni Vígspá, sem var áberandi í harðkjarnasenunni í kringum aldamótin.














































