Grettir og Glámur
(Lag / texti: Dan Pollock / Þórarinn Eldjárn)
Glámur minnti á mann sem kom út jötu,
mestur varð hann eftir að hann dó.
Hann lagði stein í Grettis götu,
grimmastur var augasteinninn þó.
Í Drangey liggur líkaminn af Gretti
uns líður þungur pillusvefn af brá.
Flykkið vantar allt á einu bretti,
er að fara að teygja úr sér en þá.
Lyftir Glámur gleraugum af nefi,
Grettir verður undireins við það
svo hræddur að hann heldur varla slefi
og hefur varla talfærin úr stað.
En stynur loks er glyrnurnar í Glámi
gefa honum ofurlítið frí.
Vertu ekki að horfa svona alltaf á mig
ef þú meinar ekki neitt með því.
[af plötunni Bubbi Morthens – Ísbjarnarblús]














































