Hljómsveit Pálma Gunnarssonar [1] (1973-76)

Saga Hljómsveitar Pálma Gunnarssonar er um leið forsaga hljómsveitarinnar Mannakorna en fyrsta plata hennar kom út í nafni hljómsveitar Pálma, það var ekki fyrr en síðan að hún hlaut nafnið Mannakorn. Þessi forsaga Mannakorna er þó raunar enn lengri því að um nokkurra ára skeið hafði starfað hljómsveit undir nafninu Lísa (og reyndar stundum Lísa…

Magnús Eiríksson (1945-2026)

Nafn Magnúsar Eiríkssonar kemur jafnan upp þegar talað er um fremstu tónlistarmenn íslenskrar tónlistarsögu og ekki síst þegar talið berst að laga- og textahöfundum en Magnús á líklega einhvers konar met þegar kemur að stórsmellum og sígildum popplögum, sem skipta tugum í meðförum ýmissa listamanna. Ekki liggja fyrir neinar opinberar tölur um útgefin lög og…

Uncle John’s band (1969-71)

Uncle Johns‘ band var forveri þeirrar sveitar sem síðar gekk undir nöfnunum Lísa, Hljómsveit Pálma Gunnarssonar og síðast Mannakorn. Sveitin var stofnuð 1969 og innihélt gítarleikarana Magnús Eiríksson og Baldur Má Arngrímsson, Jón Kristin Cortes bassaleikara og Björn Björnsson trommuleikara, Baldur mun hafa sungið í upphafi en síðar sungu Janis Carol og Guðmundur Haukur Jónsson…