Q4U (1981-84 / 1995-98 / 2009-19)

Pönksveitin Q4U er einn helsti minnisvarði um íslensku pönkbylgjuna sem gekk yfir landið í upphafi níunda áratugar síðustu aldar og náði hámarki um það leyti sem kvikmyndin Rokk í Reykjavík var frumsýnd. Sveitin þótti í upphafi með afbrigðum illa spilandi en vann á og var reyndar um tíma þekktari fyrir berbrjósta söngkonu en tónlist –…

Steinþór Stefánsson (1961-88)

Steinþór Stefánsson bassaleikari var ein birtingarmynd pönkbylgjunnar sem gekk yfir landið á árunum 1980 til 82 en hann var þar áberandi sem bassaleikari hljómsveita eins og Fræbbblanna og Q4U og þá um leið sem mótív fyrir ljósmyndara dagblaðanna sem voru óþreytandi að smella af honum myndum. En Steinþór var ekki eingöngu bassaleikari og módel, hann…