
Fyrsta myndin sem birtist í fjölmiðlum tengd Q4U – Ellý og Linda 1981
Pönksveitin Q4U er einn helsti minnisvarði um íslensku pönkbylgjuna sem gekk yfir landið í upphafi níunda áratugar síðustu aldar og náði hámarki um það leyti sem kvikmyndin Rokk í Reykjavík var frumsýnd. Sveitin þótti í upphafi með afbrigðum illa spilandi en vann á og var reyndar um tíma þekktari fyrir berbrjósta söngkonu en tónlist – tónlistin tók miklum breytingum á fyrsta tímaskeiði sveitarinnar en þau tímaskeið urðu alls þrjú, Q4U hefur að öllum líkindum sungið sitt síðasta en þó skal aldrei útiloka neitt þegar kemur að hljómsveitinni.
Stofnun Q4U átti sér örstuttan aðdraganda en í mars 1981 hafði hljómsveit verið stofnuð með sólarhrings fyrirvara til að leika á tónlistarhátíðinni Raw flower sem haldin var í Norðurkjallara MH, sú sveit bar nafnið Nýnasistur. Nýnasistur léku aðeins í það eina skipti en meðlimir hennar ákváðu að halda áfram samstarfinu og kom svo fram stuttu síðar á Hótel Borg sem þá var aðalvígi pönksins (og um leið lifandi tónlistar á höfuðborgarsvæðinu) undir nafninu Q4U og með breyttri liðsskipan – meðlimir sveitarinnar munu þá hafa verið þau Gunnþór Sigurðsson bassaleikari, Helgi Helgason trommuleikari, Elínborg Halldórsdóttir (sem síðan þá hefur yfirleitt gengið undir nafninu Ellý í Q4U) söngkona, Berglind Garðarsdóttir (Linda) söngkona (síðar búningahönnuður), Steinþór Stefánsson gítarleikari og Danny Pollock sem lék á hljómborð en hann var þá mun þekktari sem gítarleikari Utangarðsmanna. Hann var eini meðlimur sveitarinnar sem hafði eitthvað komið að tónlist fram að þessu en tónlistarflutningur mun hafa verið nýtt fyrirbæri fyrir hinum, utan þess að Gunnþór og Helgi voru á þeim tíma rótarar Utangarðsmanna.
Tónlistarflutningur sveitarinnar á tónleikunum á Borginni mun hafa verið eftir því sem blaðafrásagnir segja, með eindæmum slæmur. Pönkhugsjónin var þó komin til sögunnar og henni er best lýst með orðum Einars Arnar Benediktssonar nokkrum mánuðum síðar þegar hann sagði eins og frægt er; „Málið er ekki hvað maður getur, heldur hvað maður gerir“, og sveitin hélt því sínu striki ótrauð áfram en meðlimir hennar hafa margoft sagt frá því síðar í blaðaviðtölum að Q4U hafi komið fram tólf eða þrettán sinnum á tónleikum áður en þau æfðu í fyrsta sinn.

Fyrsta útgáfa sveitarinnar
Sveitin fór reyndar fljótlega í pásu um vorið því rótarar Utangarðsmanna (Gunnþór og Helgi) höfðu nóg að gera en sú sveit var um þær mundir að gefa út plötu sem var fylgt meðal annars eftir með tónleikaferðalagi erlendis – og reyndar sprungu Utangarðsmenn í loft upp í þeirri ferð eins og kunnugt er. Danny Pollock sem lék á hljómborð með Q4U á Hótel Borg ætlaði ekki að halda áfram í samstarfinu með sveitinni og þegar hún auglýsti eftir nýjum hljómborðsleikara um sumarið kom maður að nafni Már [?] inn í bandið en mun hafa staldrað stutt við – engar frekari upplýsingar er að finna um hann frekar en um enskan hljómborðsleikara sem einnig mun hafa verið um skamma hríð í sveitinni samkvæmt heimild.
Q4U hafði aðsetur í íbúð við Fischersund í miðbænum en þar lifðu þau eins konar kommúnulífi, Linda og Steinþór voru par og um þetta sama leyti höfðu þau Ellý og Gunnþór gift sig svokallaðri sparimerkjagiftingu en urðu reyndar síðar saman og eignuðust þá barn. Þarna í Fischersundinu var mikið sukkað og komst sveitin stundum frekar í fréttir vegna lífernisins fremur en tónlistarinnar, og svo fyrir að Ellý átti til að koma fram léttklædd og jafnvel berbrjósta á sviðinu þannig að tónlistin fór e.t.v. þess vegna fyrir ofan garð og neðan hjá sumum miðaldra tónlistarblaðamönnum dagblaðanna.

Q4U
Eftir að Utangarðsmenn liðu undir lok um sumarið (1981) fór Q4U af stað á nýjan leik og um haustið hitaði sveitin upp ásamt Þey fyrir bresku hljómsveitina The Fall á Hótel Borg. Skömmu síðar lék sveitin einnig á N.E.F.S. samkomu í Félagsstofnun stúdenda við Hringbraut, sem þá var orðin nokkuð vinsæll tónleikastaður. Þarna um haustið kom Kormákur Geirharðsson trommuleikari (síðar verslunarmaður í Kormáki & Skildi) inn í sveitina í stað Helga en Kormákur hafði verið liðsmaður Taugadeildarinnar sem hætti um svipað leyti, Árni Daníel Júlíusson hljómborðsleikari sem einnig hafði verið í þeirri sveit kom jafnframt eitthvað fram með Q4U og sveitin þótti hafa tekið heilmiklum framförum frá því um vorið en hún var töluvert virk á haustmánuðum, lék á Borginni sem og í félagsmiðstöðvum eins og Fellahelli og í framhaldsskólunum á höfuðborgarsvæðinu. Sveitinni fylgdi þó miklu fremur spilagleði en metnaður og reyndar ögruðu meðlimir hennar töluvert með nasistagríni sem fór ekki vel í alla.
Þetta haust vann Friðrik Þór Friðriksson að kvikmyndinni Rokk í Reykjavík og Q4U fékk að vera hluti af því ævintýri en þrjú lög sveitarinnar (Creep / Gonna get you / Toys) hljóma í myndinni og á plötunni, sem kom út samhliða henni um páskana 1982 – þar má segja að sveitin hafi fengið almenna athygli landsmanna en athyglin hafði fram að því einvörðungu verið tengd pönksenunni.
Q4U lét ekki eins mikið fyrir sér fara framan af árinu 1982 og liðsmenn hennar sinntu þá hliðarverkefnum í tónlistinni (s.s. Anna og grafararnir) en um það leyti sem Rokk í Reykjavík var frumsýnd um páskana hafði sveitin ráðgert að senda frá sér kassettu sem hefði að geyma tæplega þrjátíu lög sem hljóðrituð höfðu verið í æfingahúsnæði sveitarinnar sem þá var í Hafnarfirði. Þær upptökur voru tilbúnar til útgáfu og höfðu hlotið heitið Skaf í dag en voru reyndar aldrei gefnar út á því formi en rötuðu löngu síðar á safnplötu sveitarinnar.
Breytingar urðu á skipan Q4U um mitt ár 1982, um vorið virtist sem gítarleikarinn Kristján Einar Gíslason væri í þann mund að ganga til liðs við sveitina í stað Steinþórs sem varð þó ekki, Steinþór hætti þó í henni sem og Linda en Árni Daníel sem hafði komið fram með sveitinni lítillega um haustið á undan gekk nú í hana og varð fastur liðsmaður Q4U – þegar sveitin lék á Rokkhátíð ´82 í Austurbæjarbíói um sumarið lék gítarleikarinn Óðinn Guðbrandsson með henni og var í sveitinni um hríð en Danny Pollock virðist einnig stundum hafa leikið með þeim. Kormákur trommuleikari var um þær mundir að glíma við veikindi (líklega bakmeiðsli) og notaði sveitin trommuheila til að fylla skarð hans, af þeim sökum lék sveitin lítið opinberlega um haustið en tilkoma Árna Daníels varð til þess að gjörbreyta tónlistinni sem nú varð að eins konar nýrómantísku tölvupönki. Sveitin mun hafa hljóðritað nokkur lög um sumarið.
Um verslunarmannahelgina lék Q4U á Hótel Hveragerði á illa sóttri tónlistarhátíð í blómabænum og síðsumars var sveitin töluvert áberandi í spilamennsku s.s. á SATT kvöldum í Tónabæ, Klúbbnum og víðar, og ekki má gleyma Melarokki. Kormákur var hins vegar enn frá og var í raun hættur þarna, og stundum virðist sveitin einungis hafa verið skipuð þremur meðlimum, Ellý, Gunnþóri og Árna Daníel auk trommuheila. Af þeim sökum fór minna fyrir sveitinni síðustu mánuði þessa viðburðaríka árs en í uppgjöri tónlistarspekúlanta fyrir árið 1982 um áramót má nefna að Q4U lenti í þriðja sæti vinsældavals Æskunnar, á eftir Egó og Grýlunum.

Q4U 1982
Q4U lék á tónleikum í janúar 1983 eftir nokkurt hlé og um það leyti spurðist út að sex laga plata myndi koma út fljótlega. Sú skífa birtist í mars og hlaut einfaldlega nafnið Q1 og var gefin út af Gramminu en hún hafði verið hljóðrituð í Grettisgati, hljóðveri Þursaflokksins undir lok ársins. Á þeim upptökum voru þau fjögur, Ellý, Gunnþór, Árni Daníel og Danny. Ellý hafði hannað útlit plötuumslagsins en platan hlaut yfirleitt góða dóma í fjölmiðlum, þokkalega í Þjóðviljanum, Vikunni og DV og góða í Poppbók Jens Kr. Guðmundssonar, Tímanum, Morgunblaðinu, Samúel og Æskunni. Lagið Böring naut töluverðra vinsælda og einnig fengu lögin Tískufrík og PLO nokkra athygli, hefði skífan komið út um nokkrum mánuðum síðar (um haustið) hefði hún hlotið miklu meiri athygli en þá kom Rás 2 fram á sjónarsviðið. Þess má geta að útlitslega hafði Q4U tekið miklum breytingum og skartaði nú stílhreinum „nýrómantískum“ fatastíl í stað pönkgallans en Elly söngkona sem fengist hefur við hin ýmsu listform, hannaði útlit sveitarinnar, plötuumslag og fleira tengt henni.
Q4U fylgdi útgáfu plötunnar nokkuð eftir með spilamennsku í Klúbbnum, Borginni og Safarí og lék einnig í félagsmiðstöðvum eins og Þróttheimum og víðar. Um sumarið hitaði sveitin upp fyrir Classix Nouveaux í Laugardalshöllinni og þá lék Kormákur með sveitinni en það var bara tímabundið og fljótlega hafði Jóhann Richardsson (Jói Motorhead) gengið í sveitina. Fleiri hræringar voru um þetta leyti í hljómsveitinni, Árni Daníel hætti og Steinþór kom inn tímabundið fyrir Danny um tíma, og Jóhann hætti svo einnig þannig að hann staldraði stutt við í bandinu, sem varð tríó þeirra Ellýjar, Gunnþórs og Danny um tíma um haustið og þarf varla að taka fram að sveitin var lítt virk í tónleikahaldi um það leyti. Undir lok árs auglýsti hún eftir hljómborðsleikara en tónlist hennar var nú aftur orðin töluvert rokkaðri eftir að hljómborðin hurfu af vettvangi. Einhverjar fréttir höfðu borist af því að Q4U væri að vinna að nýrri plötu og var Skífan nefnd í fjölmiðlum sem útgefandi þeirrar plötu en ekkert meira gerðist í þeim málum, sveitin hafði hljóðritað nokkur lög í stúdíóinu Nema í Glóru um sumarið.

Q4U á Borginni 1982
Þarna var ljóst að dagar Q4U væru nokkurn veginn taldir, Óðinn gekk aftur til liðs við sveitina í ársbyrjun en hún lék þó lítið sem ekkert á tónleikum, í blaðaviðtali kom í ljós að Ellý og Gunnþór ættu von á barni um vorið og því myndi sveitin ekkert koma fram fyrr en um sumarið. Það gerðist þó ekki þrátt fyrir að fréttir þess efnis bærust um að Ellý og Gunnþór væru komin með þrjá nýja meðlimi í sveitina – engar upplýsingar er að finna um hverjir það voru. Q4U lognaðist því útaf og meðlimir hennar poppuðu upp á næstu árum í sveitum eins og Þetta er bara kraftaverk, Dýrið gengur laust, Purpurarauðir demantar, Akureyrar-útlagarnir, Frumskógaredda og Parrak svo nokkur dæmi séu nefnd.
Þegar Steinþór Stefánsson fyrrum gítarleikari Q4U lést með voveiflegum hætti vorið 1988 aðeins 27 ára gamall voru haldnir minningartónleikar um hann um haustið í Tunglinu undir yfirskriftinni Minni Steinþórs, þar kom Q4U saman eftir fjögurra ára hlé en ekki er með öllu ljóst hverjir skipuðu sveitina þá – líklega voru það þó Ellý, Gunnþór, Árni Daníel og Ingólfur Júlíusson bróðir Árna Daníels sem gæti hafa leikið á gítar.
Árin liðu og haustið 1995 bárust þær fregnir að Q4U hefði verið endurreist og myndi leika á tónleikum sem Mótorsmiðjan stóð fyrir í Loftkastalanum sem svo varð en ekki liggur fyrir hverjir skipuðu sveitina þá með Ellý og Gunnþór en þau tvö hafa alltaf myndað hinn eiginlega kjarna sveitarinnnar. Sumarið 1996 var svo sveitin enn komin á ferðina og þá var Árni Daníel genginn til liðs við Ellý og Gunnþór á nýjan leik en hann var þá að koma frá námi í Danmörku og hlaut reyndar síðar doktorsnafnbót í sagnfræði. Aðrir meðlimir voru þarna Guðmundur Þór Gunnarsson trommuleikari (Tappi tíkarrass, Das Kapital o.fl.) og Arnar Davíðsson gítarleikari.

Q4U
Þetta sama haust 1996 kom svo út plata með sveitinni, þetta var í raun safnplata (geisladiskur) með heildarsafni laga sem hljóðrituð höfðu verið. Megnið af efninu var frá 1983 (m.a. upptökur úr Glóru og úr æfingahúsnæði sveitarinnar við Rauðavatn) en þar var einnig að finna sitt hvort lagið með hljómsveitunum T42/Swinging zombies og Þetta er bara kraftaverk – hliðarsveitum Q4U, alls þrjátíu og fjögur lög. Platan sem bar titilinn Q2 1980-1983 hlaut fremur slaka dóma í DV enda var hún fyrst og fremst hugsuð sem minnisvarði um sveitina sem passaði fremur illa við tónlistartíðarandann um miðjan tíunda áratuginn. Sveitin fylgdi útgáfunni samt sem áður eftir og lék töluvert í kjölfarið, m.a. á útgáfutónleikum í Rósenberg kjallaranum, og á tónleikum í Hinu húsinu, Gauki á Stöng og víðar. Á þeim tíma hafði Ingólfur gítarleikari bróðir Árna Daníels endanlega gengið til liðs við sveitina og tekið við af Arnari, tónlistin var þarna aftur orðin töluvert rokkaðri en þó með áberandi hljómborðum sem fyrr.
Q4U stefndi nú á að vinna með nýtt efni sem svo var gert og eitthvað af því var hljóðritað – eitt þeirra laga (Þessi augu) kom svo út á safnplötunni Lagasafnið 6 (1997) en sveitin lék eitthvað næstu tvö árin s.s. á Pönk 97 í Norðurkjallara MH, í Hinu húsinu, Gauknum og Rósenberg kjallaranum en árið 1998 hætti sveitin aftur störfum og þar með lauk öðru tímaskeiði hennar.
Nú tók við langt tímabil þar sem ekkert spurðist til Q4U, Ellý bjó lengi vel uppi á Akranesi, Árni Daníel sinnti fræðastörfum og aðrir meðlimir sneru sér að öðrum verkefnum. 2005 bárust reyndar þær fréttir að sveitin myndi hita upp fyrir Alice Cooper og hljómsveit hans á tónleikum um sumarið en af þeim áformum varð ekki af einhverjum ástæðum – sveitin virðist þó eitthvað hafa komið saman til æfinga um það leyti og var þá skipuð Ellý, Gunnþóri, Danny, Kormáki, Árna Daníel og Ingólfi.
Það var svo síðsumars 2009 að lifnaði yfir gömlu pönksveitinni á nýjan leik en þá hafði Þjóðverji keypt upp upplagið af safnplötunni Q2 til að selja í Berlín og vildi fá fleiri eintök af plötunni, svo virðist sem þúsund eintök hafi þá verið framleidd í viðbót af henni og send til Þýskalands. Þetta varð meðlimum Q4U hvatning til að endurreisa sveitina og um vorið lék hún ásamt Fræbbblunum á Sódómu, Ellý, Gunnþór, Árni Daníel, Ingólfur og trommuleikarinn Heiðar Kristinsson en hann var töluvert yngri en þau hin og hafði leikið með sveitum eins og Dos Pilas og Buttercup. Sveitin lék svo á Off venue tónleikum á Iceland Airwaves um haustið en þar var Guðjón Guðjónsson trymbill sveitarinnar.

Q4U – opnumynd í Vikunni 1983
Næstu árin á eftir birtist Q4U með hléum, hún lék t.a.m. á Innipúkanum um verslunarmannahelgina 2011 en um það leyti setti brasilískt útgáfufyrirtæki (Wave records) sig í samband við sveitina og í kjölfarið kom út þar í landi eins konar safnplata með 28 lögum hennar undir yfirskriftinni Best of Q4U, einhvers konar tölvupönks-vakning var þá í gangi í Brasilíu og jafnvel kom upp úr hugmynd að sveitin færi til Suður-Ameríku sumarið á eftir – þau áform féllu um sjálf sig enda rándýrt ævintýri fyrir fjölskyldufólk sem jafnvel var komið á afa- og ömmualdur. Um haustið 2011 lék sveitin svo á Airwaves, Pönk 2011 hátíðinni í Kópavogi og líklega víðar en hún var þá skipuð Ellý, Gunnþóri, Guðmundi trommuleikara (sem aftur var genginn í sveitina) og bræðrunum Árna Daníel og Ingólfi. Síðar þetta sama haust birtust fréttir þess efnis að sautján laga vínyl safnplata yrði gefin út með Q4U af Dark entries í San Fransisco en hún hlaut titilinn Q1: deluxe edition 1980-1983, og kom út 2013.
Árið 2012 lék Q4U á fáeinum tónleikum, á Gauknum um vorið og svo á Rokk festival á Dillon um verslunarmannahelgina en það sama ár greindist Ingólfur gítarleikari með bráðahvítblæði svo eðlilega varð minna um tónleikahald en ella hefði orðið. Í febrúar 2013 voru haldnir tónleikar í Norðurljósasal Hörpu til styrktar Ingólfi í veikindum hans og komu fjölmargar sveitir fram á þeim en Egill Viðarsson leysti Ingólf af hólmi á þeim tónleikum – reyndar kom hann sjálfur lítillega fram með Q4U þar. Ingólfur lést svo um vorið úr veikindum sínum aðeins 43 ára gamall.

Logo Q4U – hannað af Ellý
Q4U kom ekki mikið fram eftir þetta, sveitin lék á Airwaves um haustið 2014 og birtist í fáein skipti eftir það, á pönkhátíð í Kópavogið vorið 2014, á Dillon í byrjun árs 2015 og svo á styrktartónleikum á Gauknum um vorið og á Græna hattinum á Akureyri um svipað leyti. Ári síðar lék sveitin á tónlistarhátíðinni Norðanpaunk um verslunarmannahelgina en nokkrum vikum síðar – um haustið 2015 kom út platan Qþrjú (Q3) en hún var gefin út í minningu Ingólfs. Á þeirri plötu var að finna fjórtán lög sem hljóðrituð höfðu verið síðustu árin á undan og kom Ingólfur við sögu í að minnsta kosti tveimur þeirra. Aðrir liðsmenn sveitarinnar á þeirri plötu voru Ellý, Gunnþór, Guðmundur trommuleikari og áðurnefndur Egill gítarleikari en Ingólfur hafði samið tónlistina með þeim félögum. Sveitin lék á útgáfutónleikum í tilefni plötunnar og svo við opnun Pönksafnsins í Bankastræti auk þess að koma fram á off venue viðburðum í tengslum við Airwaves. Eftir það lék sveitin á Pönkveislu Dillon vorið 2017 og svo á Gauknum það sama haust en svanasöngur Q4U var líklega á Hard rock í febrúar 2019, sveitin hefur ekki komið fram síðan þá og má af því ætla að gömlu pönkbrýnin hafi sagt sitt síðasta enda voru meðlimir sveitarinnar þá að skríða á sjötugsaldurinn – það ætti þó aldrei að segja aldrei.
Eftir Q4U liggja sex útgáfur, sem reyndar flestar eru eins konar safnútgáfur en auk þess hafa lög sveitarinnar ratað inn á fjölmargar safnplötur með blandaðri tónlist – meira að segja hafa lög með henni komið út á erlendum safnútgáfum (Wave Klassix vol. 5 (2011), Subnormal Girls – D.I.Y. / Post Punk 1979-1984 Volume 2 (2017)), hér heima má nefna safnplötur eins og Nælur (1998), [hrátt] pönksafn (2016), [soðið] pönksafn (2016) og Stelpurokk (1997) svo nokkur dæmi séu nefnd. Það er líkast til töluvert meira en menn hefðu gert ráð fyrir þegar sveitin var að stíga sín fyrstu skref á sviði Hótel Borgar vorið 1981.














































