Söngfélag Stykkishólms (1878-88)

Kór eða söngflokkur var starfandi í Stykkishólmi um áratugar skeið undir lok 19. aldar, undir nafninu Söngfélag Stykkishólms en bókbindarinn Guðmundur Guðmundsson var stofnandi þess og söngstjóri. Söngfélag Stykkishólms var stofnað árið 1878 til að syngja á milli atriða á leiksýningum sem leikfélagið í bænum setti upp en það var stofnað um svipað leyti. Guðmundur…

Lúðurþeytarafélag Reykjavíkur (1876-1916)

Lúðurþeytarafélag (Lúðraþeytarafélag) Reykjavíkur telst með réttu vera fyrsta íslenska hljómsveitin en hún starfaði um fjörutíu ára skeið í kringum aldamótin 1900. Lúðurþeytarafélagið var stofnað fyrir stuðlan Helga Helgasonar tónskálds en hann hafði árið 1874 orðið vitni að leik konunglegrar danskrar lúðrasveitar sem lék hér á landi í tilefni af þúsund ára þjóðhátíðarafmælis Íslendinga. Hreifst Helgi svo…