Tengja
(Lag / texti: Bjarni Hafþór Helgason / Arnar Björnsson)
Er ekki tími til kominn að tengja?
Er ekki tími til kominn að tengja?
Tengja, tengja, tengja?
Fjólurnar fjúka og Finnbogi skiptir um gír.
Verðbólgan æðir um Hveradali og hnjúka.
Hannes í Tungu var búmaður góður og dýr.
Er ekki tími til kominn að tengja?
Er ekki tími til kominn að tengja?
Tengja, tengja, tengja?
Bílar í bunu og Bretarnir gengu á land,
Sindri á Fitjum er ástfanginn pínu í Unu.
Allir á hættu við biðskyldumerkið og grand.
Er ekki tími til kominn að tengja?
Er ekki tími til kominn að tengja?
Tengja, tengja, tengja?
Að tolla í tísku og tegunarmerki í senn.
fékk Dengsi í Felli átta í frönsku og þýsku?
Féll ekki Jóhannes Sæmundsson aftur og enn?
Er ekki tími til kominn að tengja?
Er ekki tími til kominn að tengja?
Tengja, tengja, tengja?
Er ekki tími til kominn að tengja?
Er ekki tími til kominn að tengja?
Tengja, tengja, tengja?
[m.a. á plötunni Bjarni Hafþór – … með á nótunum]














































