Afmælisbörn 14. september 2025

Anna Vilhjálmsdóttir

Í dag eru sex afmælisbörn á skrá Glatkistunnar:

Gítarleikarinn Gyða Hrund Þorvaldsdóttir er fjörutíu og þriggja ára gömul á þessum degi. Gyða Hrund hefur starfað með hljómsveitum sem teljast í þyngri kantinum í bransanum og hér má nefna sveitir eins og Angist, Hostile og Extermination order svo einhverjar séu nefndar.

Anna Vilhjálms söngkona (f. 1945) hefði í dag fagnað áttræðis afmæli sínu en hún lést fyrr á þessi ári. Auk þess að syngja með ýmsum þekktum söngvurum á plötum á sjötta áratugnum gaf hún sjálf út sólóplötuna Frá mér til þín (1991) þar sem m.a. er að finna stórsmellinn Fráskilin að vestan en hún hafði flutt heim frá Bandaríkjunum nokkru áður, þar gaf hún einnig út plötu. Anna starfrækti eigin hljómsveitir um árabil en söng þar að auki með fjölda sveita hér heima og vestra. Meðal þekktra laga Önnu Vilhjálms má nefna Ef þú giftist, Það er bara þú og Manstu vinur.

Eiríkur Árni Sigtryggsson tónskáld, kórstjórnandi og listmálari frá Keflavík fagnar áttatíu og tveggja ára afmæli í dag. Eiríkur Árni hefur stjórnað kórum og söngflokkum, margir muna eftir Söngflokki Eiríks Árna á áttunda áratugnum en einnig má nefna karlakórinn Þresti og Garðakórinn. Þess má og geta að hann var bassaleikari hljómsveitarinnar Beatniks í Keflavík á sínum tíma.

Rúnar Georgsson saxófónleikari átti einnig afmæli á þessum degi. Rúnar fæddist 1943, byrjaði að læra tónlist í Vestmannaeyjum en síðan í Reykjavík og víðar. Hann lék með ýmsum danshljómsveitum á árum áður, s.s. KK-sextett, Hljómsveit Björns R. Einarssonar og Lúdó sextett en fyrst og fremst tileinkaði hann sér þó djasstónlist. Leik hans má finna á mörgum plötum frá ýmsum tímum, bæði djass- og poppplötum. Hann gaf út plötuna Til eru fræ, ásamt Þóri Baldurssyni árið 1986.

Geirharður Valtýsson, öðru nafni Gerhard Schmidt átti þennan afmælisdag en hann lést árið 2010. Geirharður (f. 1929) kom hingað til lands frá Þýskalandi og reif upp tónlistarlífið á Siglufirði sem skólastjóri tónlistarskólans þar í bæ auk þess sem hann stjórnaði Karlakórnum Vísi og fleiri kórum, stjórnaði lúðrasveit bæjarins og lék með hljómsveitinni Gautum svo dæmi séu nefnd. Hann starfaði síðar í Reykjavík áður en hann flutt af landi brott.

Gunnar Pálsson tenórsöngvari (fæddur 1902) hefði að líkindum orðið þekktari en raun ber vitni hefði heimstyrjöld ekki skollið á í þann mund er stóru tækifærin voru framundan, þekktastur er hann líklega fyrir útgáfu sína af laginu Sjá dagar koma. Gunnar starfaði lengst af í Bandaríkjunum og þar lést hann í hárri elli árið 1996.