Venus [5] (1993-2005)

Hljómsveit sem bar nafnið Venus starfaði á Rifi á Snæfellsnesi um ríflega áratugar skeið í kringum síðustu aldamót og lék einkum á dansleikjum á heimaslóðum. Venus var stofnuð haustið 1993 en stofnmeðlimir hennar voru nokkrir vinnufélagar sem störfuðu við beitningar á Rifi, aðeins einn þeirra hafði þá reynslu af spilamennsku í hljómsveitum en það var…

Bárðarbúðarböðlarnir (1982-)

Bárðarbúðarböðlarnir hafa starfað með löngum hléum allt frá árinu 1982 og jafnvel lengur en sveitin er vinahópur sem spilar einstöku sinnum þegar þeir eru í stuði. Litlar upplýsingar er að finna um þessa sveit en árið 1982 sendi hún frá sér tuttugu laga plötu sem hafði að geyma efni sem tekið var upp á Hellissandi,…

Útrás [1] (1973-76)

Hljómsveit sem stofnuð var upp úr rústum annarrar, Nú-jæja, frá Hellissandi 1973. Meðlimir hinnar fyrri sveitar voru Pálmi Almarsson gítarleikari, Eggert Sveinbjörnsson trommuleikari og Benedikt Jónsson orgelleikari en auk þeirra bættist nú í hópinn Sigurður Egilsson bassaleikari (Lexía). 1974 kom Ægir Þórðarson gítarleikari í sveitina og spilaði hún víða um land allt til 1976 þegar…