Góbí (um 1965-70)

Á Fáskrúðsfirði starfaði um nokkurra ára skeið á sjöunda áratug síðustu aldar, ballsveit sem gekk undir nafninu Góbí en nafn sveitarinnar mun hafa verið skammstöfun mynduð úr nöfnum stofnmeðlima hennar. Guðmundur Ágústsson trommuleikari, Óðinn G. Þórarinsson harmonikkuleikari, Bjarni Kjartansson gítarleikari og Ingólfur Arnarson gítarleikari gætu verið þeir fjórir sem mynduðu skammstöfunina í Góbí en einnig…

Bræðrabandið [1] (1979-)

Hljómsveitin Bræðrabandið úr Hafnarfirði hefur starfað síðan fyrir 1980 með hléum en hún var framan af kántrýsveit. Bræðrabandið var stofnað haustið 1979, nafn sveitarinnar kemur til af því að í henni eru tvennir bræður, Ingólfur Arnarson gítarleikari og Jón Kristófer Arnarson einnig gítarleikari, og Ævar Aðalsteinsson banjóleikari og Örvar Aðalsteinsson kontrabassaleikari. Allir munu þeir fjórmenningarnir…

Be not (1999-2008)

Hafnfirska hljómsveitin Be not var starfandi árið 1999, keppti vorið 2000 í Músíktilraunum en komst ekki í úrslitin. Friðbjörn Oddsson söngvari og gítarleikari, Brynjar Geirsson gítarleikari, Jóhann Hjaltason bassaleikari og Ingólfur Arnarson trommuleikari skipuðu sveitina. Sveitin starfaði lengi eftir þetta og var Logi Geirsson (síðar handknattleiksmaður) bróðir Brynjars, eitthvað viðloðandi sveitina, spilaði líklega á gítar…