Afmælisbörn 17. febrúar 2024

Magnús Ólafsson

Í dag eru sjö tónlistartengd afmælisbörn á skrá Glatkistunnar:

Magnús Ólafsson skemmtikraftur og söngvari (Bjössi bolla) er sjötíu og átta ára gamall á þessum degi. Tónlistarferill Magnúsar er mun stærri en fólk gerir sér almennt fyrir, hann ásamt Þorgeiri Ástvaldssyni söngvara gaf út tvær plötur undir nöfnum Hurðaskellis og Stúfs (og reyndar eina til sem þeir sjálfir) en einnig er söng hans að finna á plötum Sumargleðinnar, Áhafnarinnar á Halastjörnunni og Latabæjargengisins. Magnús gaf sjálfur út sólóplötuna Maggi með öllu árið 1988.

Ólafur Þórarinsson (Labbi í Glóru) er sjötíu og fjögurra ára gamall í dag. Labbi sem lengi var kenndur við hljómsveitina Mána frá Selfossi hefur leikið með fjölda annarra sveita á ferli sínum og má meðal annarra nefna hér Kaktus, Þrívídd, Blóðberg og Karma en auk þess hefur hann gefið út nokkrar sólóplötur. Margir þekkja útgáfu Labba af laginu Undir bláhimni en hann rak jafnframt hljóðver um tíma.

Kjartan Róbertsson bassaleikari er fjörutíu og átta ára gamall á þessum degi. Kjartan var nokkuð áberandi í íslensku rokki á síðasta áratug tuttugustu aldarinnar en hann lék þá á bassa með þekktum sveitum eins og Strigaskóm nr. 42 og Ensími og síðar með sveitum eins og Vítamín og Kung fú. Kjartan hefur ekki verið áberandi í tónlistinni síðustu árin.

Gróa Hreinsdóttir kórstjórnandi, tónlistarkennari og píanóleikari fagnar sextíu og átta ára afmæli sínu í dag. Gróa hefur stjórnað ógrynni kóra í gegnum tíðina og má hér nefna Borgarkórinn, Kyrjukórinn, Barnakór Landakotsskóla, Skólakór Hafralækjarskóla og Stúlknakór Tónlistarskóla Keflavíkur svo nokkur dæmi séu nefnd.

Guðni Rúnar Agnarsson er sextíu og átta ára gamall í dag. Guðni Rúnar er þekktastur fyrir dagskrárgerð sína í útvarpi en hann kom m.a. að frægum tónlistarþáttum sem báru nafnið Áfangar og innihéldu framsækna tónlist, segja mætti að hann beri að vissu leyti ábyrgð á því að hljómsveitin Kukl (sem var undanfari Sykurmolanna) varð til. Guðni Rúnar kom einnig að ýmsum öðrum þáttum tónlistarinnar, m.a. við tónleikahald, plötuútgáfu, hann gegndi stöðu framkvæmdastjóra N.E.F.S. o.fl.

Örn Ármannsson gítar- og sellóleikari (1943-2006) hefði einnig átt afmæli á þessum degi. Hann lék með ýmsum hljómsveitum hér á árum áður og má þar nefna Fimm í fullu fjöri, Hljómsveit Svavars Gests, Tríó Jóns Páls Bjarnasonar, Hljómsveit Hauks Morthens, Musica Prima og Sumargleðina.

Jónatan Ólafsson tónlistarmaður átti ennfremur afmæli þennan dag. Jónatan (1914-97) átti ekki langt að sækja tónlistina en bræður hans, Sigurður og Erling, voru t.a.m. tónlistarmenn sem og fjöldi afkomendur þeirra og skyldmenni. Sjálfur var Jónatan píanóleikari og lék í fjölda hljómsveita s.s. Hljómsveit Bjarna Böðvarssonar, Hljómsveit Þorvaldar Steingrímssonar og Kátum piltum en hann samdi einnig fjölda þekktra laga s.s. Í landhelginni, Síldarvalsinn og Laus og liðugur (Sigurður var sjómaður), svo fáein séu hér nefnd.

Vissir þú að Hera Hjartardóttir sendi frá sér sína fyrstu plötu aðeins fimmtán ára?