Afmælisbörn 25. febrúar 2024

Þorsteinn Eggertsson

Á þessum degi eru fimm afmælisbörn á skrá Glatkistunnar:

Þorsteinn Eggertsson textaskáld, teiknari og tónlistarmaður er áttatíu og tveggja ára gamall í dag, þekktastur er hann fyrir textagerð sína, einkum frá áttunda áratug síðustu aldar. Hann samdi ógrynni dægurlagatexta sem flestir þekkja enn í dag en þar má nefna Slappaðu af, Ég elska alla og Er hann birtist, sem eru auðvitað bara pínulítið sýnishorn af því sem hann hefur samið. Þorsteinn lærði teikningu í Danmörku og var klárlega einn af fyrstu plötuumslagahönnuðum landsins en hann var einnig söngvar í mörgum hljómsveitum um 1960, s.s. KK sextett, Neo kvartettnum og Hljómsveit Guðmundar Ingólfssonar svo dæmi séu tekin.

Jón Ólafsson (hinn góði) hljómborðsleikari, söngvari og lagahöfundur fagnar í dag sextíu og eins árs afmæli en hann hefur víða poppað upp á sínum langa tónlistarferli. Hann hafði verið í fjölmörgum sveitum áður en hann gerði garðinn frægan í böndum eins og Possibillies, Sálinni hans Jóns míns, Bítlavinafélaginu, Fjallkonunni og Nýdanskri en hann hefur einnig fengist við þáttagerð í útvarpi og sjónvarpi frá því um miðjan níunda áratuginn.

Þá á Arnar Halldórsson annar helmingur The Boys tvíeykisins fjörutíu og tveggja ára afmæli í dag en margir muna eftir þeim bræðrum sem slógu í gegn kornungir með gamla (og nýrri) slagara hér á landi, en aðallega þó í Noregi þar sem þeir bjuggu á sínum tíma. Arnar nam síðar grafíska hönnun og hefur lítið starfað við tónlist síðustu árin, hann var þó í hljómsveitinni Spinoza á sínum tíma.

Sigríður Níelsdóttir tónlistarkona með meiru átt ennfremur afmæli á þessum degi en hún lést árið 2011. Hún fæddist 1930, samdi eitthvað af lögum í Brasilíu þar sem hún bjó lengi en gerði tónlistina ekki að alvöru áhugamáli fyrr en hún var komin yfir sjötugt. Þá komu plöturnar frá henni á færibandi en tónlistina lék hún sjálf og gaf út í litlu upplagi en 12 tónar dreifðu. Þegar Sigríður lést hafði hún á tíu ára tímabili gefið út um sextíu plötur með rétt tæplega sjö hundruð lögum, aðallega frumsömdum. Heimildamyndin Amma Lo-fi var gerð um Sigríði og vakti hún mikla athygli.

Að síðustu er hér nefndur Andri Örn Clausen (1954-2002) sem var aðalsprauta hljómsveitarinnar Andrew þar sem hann var söngvari og gítarleikari en sveitin gaf út plötuna Woops árið 1974. Andri var einnig í hljómsveitum eins og Basil fursta, Hljómsveit Guðmundar Sigurjónssonar og Fríðu sársauka en hann söng ennfremur inn á fáeinar plötur s.s. með tónlistinni úr söngleiknum Gretti.

Vissir þú að íslenskar plötur með trúarlegri tónlist skipta tugum ef ekki hundruðum í gegnum tíðina?