Hugsun [1] (1999)

Óskað er eftir upplýsingum um unglingahljómsveit sem starfaði í Rangárþingi, líklega á Hellu árið 1999 undir nafninu Hugsun – líklegt er að sveitin hafi starfað um nokkurn tíma. Hugsun lék sumarið 1999 bæði á fjölskylduhátíð í Galtalækjarskógi um verslunarmannahelgina sem og á Töðugjaldahátíðinni á Gaddstaðaflötum síðsumars. Hér er óskað eftir upplýsingum um meðlimi og hljóðfæraskipan…

Hestreður (2006-07)

Pönksveitin Hestreður vakti nokkra athygli á sínum tíma og sendi t.a.m. frá sér efni sem fékk útvarpsspilun. Hestreður var frá Hellu og var að öllum líkindum stofnuð árið 2006, sveitin var farin að leika eitthvað opinberlega og hafði sent frá sér lag eða lög sem hlutu spilun á útvarpsstöðinni X-inu áður en hún var meðal…

Fræmundur sóði (1991)

Hljómsveit sem bar nafnið Fræmundur sóði starfaði á Hellu á Rangárvöllum í kringum 1990, líklega 1991. Meðlimir Fræmundar sóða voru þeir Davíð Guðjónsson gítarleikari, Kristinn Jón Arnarson bassaleikari, Guðjón Jóhannsson trommuleikari og Sigurjón Gunnarsson söngvari. Sveitin var fremur skammlíf.

Grísli & Friðrik (1987-88)

Hljómsveitin Grísli & Friðrik starfaði á Hellu á Rangárvöllum í fáeina mánuði veturinn 1987-88. Meðlimir sveitarinnar voru þeir Guðjón Jóhannsson trommuleikari, Garðar Jónsson gítarleikari, Elís Anton Sigurðsson bassaleikari og Helgi Jónsson hljómborðsleikari. Sveitin starfaði í skamman tíma sem tríó eftir að Elís bassaleikari hætti í henni.

Barnakór Oddakirkju (1995-2011)

Barnakór starfaði í nokkur ár við Oddakirkju á Rangárvöllum en uppistaðan í kórnum kom frá Hellu og nágrenni. Þáverandi organisti kirkjunnar Halldór Óskarsson stofnaði kórinn haustið 1995 og stjórnaði honum fyrstu árin. Magnús Ragnarsson var að öllum líkindum næstur stjórnenda en Nína Morávek tók við af honum og stjórnaði kórnum líklega þar til hann hætti,…

Karlakór Rangæinga [2] (1947-58)

Karlakór var starfandi í Rangárvallasýslu á árunum 1947-58. Kórinn tók reyndar ekki til starfa fyrr en haustið 1948 og var Jónas Helgason kórstjóri hans frá upphafi og að minnsta kosti til 1956 þegar hann flutti af svæðinu, ekki liggur þá fyrir hver stýrði kórnum síðustu tvö árin en hugsanlega var það Steinþór Gestsson frá Hæli…

Munkar í meirihluta (1991-93)

Munkar í meirihluta var hljómsveit frá Hvolsvelli og Hellu, starfandi 1991-93. Sveitin var stofnuð upp úr annarri hljómsveit, Frk. Júlíu, og innihélt Jón Guðfinnsson bassaleikara (Land & synir o.fl.), Snæbjörn Rafnsson gítarleikara, Helga Jónsson hljómborðsleikara, Þorstein Aðalbjörnsson trommuleikara (Írafár, Rekkverk o.fl.) og Hafstein Thorarensen söngvara. Höskuldur Lárusson (Mikki refur, Spoon o.fl.) tók við söngnum af…