Afmælisbörn 9. desember 2021

Tónlistartengdu afmælisbörn dagsins eru þrjú talsins að þessu sinni: Björgvin Franz Gíslason leikari er fjörutíu og fjögurra ára gamall í dag. Björgvin Franz var barnastjarna og vakti fyrst athygli fyrir söng sinn í Óla prik syrpu sem naut vinsælda fyrir margt löngu en hefur síðan aðallega verið tengdur leikhús- og barnatónlist, t.d. Benedikt búálfi, Stundinni…