Afmælisbörn 12. febrúar 2017

franz gunnarsson

Franz Gunnarsson

Aðeins eitt afmælisbarn er á skrá Glatkistunnar í dag:

Franz Gunnarsson gítarleikari Ensíma er fjörutíu og tveggja ára gamall á þessum degi. Franz hefur auk þess að vera einn af meðlimum Ensíma, verið í þekktum sveitum eins og Dr. Spock, Quicksand Jesus og Moody company en einnig minna þekktum á sínum yngri árum s.s. Dagfinni dýralækni og Carpe diem þegar hann var að stíga sín fyrstu spor í tónlistinni. Franz poppar reglulega upp á plötum annarra listamanna.