
Ólafur Haukur Símonarson
Eitt afmælisbarn í íslenskri tónlistarsögu kemur við sögu Glatkistunnar í dag:
Ólafur Haukur Símonarson er sjötíu og tveggja ára gamall í dag. Ólafur er fyrst og fremst laga- og textahöfundur og skipta lög hans hundruðum, oftar en ekki tengt leikhúsinu. Þarna má nefna t.d. Hatt og Fatt, Gauragang, Fólkið í blokkinni og Kötturinn fer sínar eigin leiðir en hann Ólafur hefur einnig samið texta fyrir aðra s.s. á plötu Gunnars Þórðarsonar, Borgarbrag sem innihélt m.a. lagið Gaggó Vest. Ólafur hefur einnig sungið sjálfur eigin lög, margir muna t.d. eftir laginu Allur á iði.