
Caprý kvintett
Afar fáar og litlar heimildir finnast um hljómsveit úr Rangárvalla- eða Árnessýslu, sem gekk undir nafninu Caprí kvintett (Caprý) en þessi sveit mun hafa verið starfandi í kringum 1960, og var nýskyld Safír-sextettnum sem starfaði ekki löngu síðar.
Meðlimir Caprí munu hafa verið Pétur Karlsson saxófónleikari, Guðmundur Bjarnason gítarleikari, Bjarni Sigurðsson bassaleikari, Bragi Árnason trommuleikari og Guðmar Ragnarsson saxófón- og harmonikkuleikari. Söngkona frá Hveragerði söng með sveitinni en ekki liggur fyrir hvert nafn hennar var.
Glatkistan óskar eftir frekari upplýsingum um þessa sveit.