Afmælisbörn 8. júlí 2021

Í dag eru þrjú afmælisbörn á skrá Glatkistunnar: Söngkonan og lagahöfundurinn Védís Hervör Árnadóttir er þrjátíu og níu ára gömul. Védís vakti fyrst athygli fyrir söng sinn á Nemendamótum Verzló en hún hefur einnig gefið út tvær sólóplötur, 2001 og 07. Hún hefur einnig komið fram sem gestur á ýmsum útgefnum plötum og var ein…

Afmælisbörn 7. júlí 2021

Fimm tónlistarmenn eiga afmæli í dag og eru á skrá Glatkistunnar: Aðalbjörn Tryggvason söngvari og gítarleikari Sólstafa er fjörutíu og fjögurra ára gamall í dag, Sólstafir hefur starfað síðan 1995 og liggja vel á annan tug útgáfa eftir sveitina. Sólstafir er þó ekki eina sveitin sem Aðalbjörn starfar með því hann hefur einnig leikið með…

Afmælisbörn 6. júlí 2021

Sex afmælisbörn í tónlistargeiranum hafa þennan afmælisdag samkvæmt kokkabókum Glatkistunnar: Magnús Kjartansson tónlistarmaður er sjötugur og á því stórafmæli dagsins. Hann sleit barnskónum í Keflavík og hóf þar tónlistarferil sinn en fáir hafa leikið með jafn mörgum þekktum hljómsveitum og Magnús. Svo nokkrar þeirra séu upp taldar skal nefna hér Hauka, Galdrakarla, Júdas, Óðmenn, Sléttuúlfana,…

Afmælisbörn 5. júlí 2021

Hvorki fleiri né færri en átta afmælisbörn er að finna í Glatkistunni í dag: Kristín Lilliendahl söngkona er sextíu og sex ára gömul í dag. Kristín vakti upphaflega athygli í hljómsveitinni Formúla ´71 en síðar var hún annar Söngfuglanna sem gaf út barnaplötu um miðjan áttunda áratuginn og lagið Ég skal mála allan heiminn elsku…

Afmælisbörn 4. júlí 2021

Glatkistan hefur fimm afmælisbörn á skrá sinni á þessum degi: Fyrstan skal nefna rokkarann og Eurovision-farann Eirík Hauksson en hann er sextíu og tveggja ára gamall í dag. Eiríkur hefur hin síðustu ár starfað í Noregi og verið þar í hljómsveitum s.s. Artch en hér heima gerði hann garðinn frægan með ýmsum hljómsveitum, Start, Drýsill,…

Afmælisbörn 3. júlí 2021

Í dag eru tvö tónlistartengd afmælisbörn á skrá hjá Glatkistunni: Tónlistarmaðurinn Lýður Ægisson hefði átt afmæli á þessum degi en hann lést 2019. Lýður (f. 1948), sem var bróðir Gylfa Ægissonar tónlistarmanns og faðir Þorsteins Lýðssonar sem einnig hefur gefið út efni, sendi frá sér nokkrar sólóplötur á sínum tíma, þá fyrstu 1985. Lýður starfaði…

Jóhann Jóhannsson – Karolina fund söfnun

Eins og fram hefur komið hefur verið unnið að heimildamynd um Jóhann Jóhannsson tónlistarmanns sem lést langt fyrir aldur fram í febrúar 2018. Það eru þeir Davíð Hörgdal Stefánsson og Orri Jónsson (auk Eyju Orradóttur) sem hafa haft veg og vanda að verkinu og samhliða því og rannsóknarvinnu um tveggja ára skeið hafa þeir félagar…

Afmælisbörn 2. júlí 2021

Tvö tónlistartengd afmælisbörn eru á skrá Glatkistunnar að þessu sinni: Gunnar Bjarni Ragnarsson tónlistarmaður er fimmtíu og tveggja ára á þessum degi. Margir muna eftir honum sem gítarleikara og lagahöfundi í hljómsveitinni Jet Black Joe sem fór mikinn upp úr 1990 en hann hefur einnig starfrækt fjöldann allan af hljómsveitum frá unga aldri, þar má…

Afmælisbörn 1. júlí 2021

Fjögur afmælisbörn eru á lista Glatkistunnar í dag: Fyrstan skal nefna Hreim Örn Heimisson söngvara, eða bara Hreim í Landi og sonum en hann er fjörutíu og þriggja ára gamall í dag. Hreimur söng og spilaði með nokkrum hljómsveitum áður en Land og synir komu til sögunnar, þar má nefna Föroingabandið, Sexappeal, Eins og hinir,…

Beggi Smári & Bex band á Dillon

Blúsarinn Bergþór Smári & Bex band verða með sumarblústónleika á Dillon við Laugaveg fimmtudagskvöldið 1. júlí kl. 21:00 og verður sérstakur gestur þeirra gítarleikarinn Nick Jameson. Ásamt Begga Smára sem leikur á gítar og syngur, skipa Bex bandið þeir Ásmundur Jóhannsson trommuleikari og Brynjar Páll Björnsson bassaleikari. Aðgangur er ókeypis.

Afmælisbörn 30. júní 2021

Á þessum síðasta degi júnímánaðar koma þrjú afmælisbörn við sögu: Hjörtur Howser píanó- og hljómborðsleikari er sextugur í dag og á stórafmæli. Hann hefur komið mjög víða við í íslensku tónlistarlífi, fyrst með sveitum eins og Tívolí og Fermata um 1980 en síðan með Bogart, Dúndrinu, Gömmum, Grafík, Hljómsveit Björgvins Halldórssonar, Partýtertunni, Stormsveitinni og að…

Afmælisbörn 28. júní 2021

Tvö afmælisbörn eru á skrá Glatkistunnar á þessum degi: Barnastjarnan og söngkonan Katla María (Gróa) Hausmann er fimmíu og tveggja ára gömul. Margir muna eftir henni í kringum 1980 en um það leyti komu út fjórar plötur með henni. Lög eins og Lítill Mexíkani, Ég fæ jólagjöf, Rúdolf og Prúðuleikararnir urðu feikilega vinsæl og um…

Afmælisbörn 27. júní 2021

Afmælisbörnin í dag eru þrjú talsins og eru þessi: Hallberg Daði Hallbergsson er þrjátíu og eins árs gamall í dag en hann var gítarleikari hljómsveitarinnar Jakobínurínu sem sigraði Músíktilraunir vorið 2005. Jakobínarína fór víða um lönd eftir sigurinn en lítið hefur farið fyrir Hallberg eftir að sveitin hætti störfum í ársbyrjun 2008. Hann hefur þó…

Afmælisbörn 26. júní 2021

Í dag eru tvö afmælisbörn á skrá Glatkistunnar: Stefán Hilmarsson söngvari á afmæli í dag en hann er fimmtíu og fimm ára gamall. Stefán kom fyrst fram með hljómsveitum eins og Bjargvættinum Laufeyju, Bóas, Tvöfalda bítinu og Reðr áður en hann steig á stokk með Sniglabandinu með lagið Jólahjól. Í kjölfarið fékk hann fjölmörg verkefni…

Afmælisbörn 25. júní 2021

Í dag eru tvö afmælisbörn á skrá Glatkistunnar: Ragnar Páll Steinsson bassaleikari úr Hafnarfirði er fjörutíu og sjö ára í dag. Þekktasta sveit Ragnars er auðvitað Botnleðja en hann tók einnig þátt í Pollapönk ævintýrinu og hefur leikið með hljómsveitum eins og Blend og fleirum. María (Einarsdóttir) Markan óperusöngkona átti afmæli á þessum degi en…

Afmælisbörn 24. júní 2021

Tvö afmælisbörn eru á skrá Glatkistunnar í dag: Gunnar (Bergmann) Ragnarsson á þrjátíu og tveggja ára afmæli í dag. Gunnar er söngvari hljómsveitarinnar Grísalappalísu sem hefur reyndar hætt störfum en margir muna einnig eftir Gunnari sem söngvara í Jakobínurínu sem sigraði Músíktilraunir 2005. Sú sveit hugði á landvinninga, fékk plötusamning erlendis en sneri heim og…

Afmælisbörn 23. júní 2021

Afmælisbörn dagsins í tónlistargeiranum eru eftirfarandi: Kristján Freyr Halldórsson trommuleikari frá Hnífsdal er fjörutíu og sex ára gamall í dag. Kristján hefur leikið með ótal hljómsveitum, fyrst vestra en síðar á höfuðborgarsvæðinu. Meðal sveita hans má nefna Níkagagva group, Homebreakers, Geirfuglunum, Miðnes, Prinspóló, Reykjavík! og Dr. Gunna. Kristján hefur einnig komið að tónlist með öðrum…

Afmælisbörn 22. júní 2021

Fimm afmælisbörn úr tónlistargeiranum koma við sögu í dag: Eva Mjöll Ingólfsdóttir fiðluleikari á fimmtíu og níu ára afmæli. Hún er af miklum tónlistarættum, nam fiðluleik hér heima á Íslandi áður en hún hélt til Belgíu, Sviss og Hollands til framhaldsnáms, hún menntaði sig einnig í Bandaríkjunum í tónsmíðum og hljómsveitastjórnun. Tvær plötur hafa komið…

Afmælisbörn 21. júní 2021

Í dag eru fimm tónlistartengd afmælisbörn á skrá Glatkistunnar: Inga (Jónína) Backman sópran söngkona frá Akranesi er sjötíu og fjögurra ára gömul í dag. Inga hóf ekki söngnám fyrr en hún komst á fertugsaldur og lauk söngkennaraprófi árið 1988, en hefur síðar fengist einkum við kirkjulegan söng en einnig ljóða- og óperusöng. Hún hefur ennfremur…

Afmælisbörn 20. júní 2021

Fimm afmælisbörn koma við sögu í dag: Ágústa (Aðalheiður) Ágústsdóttir sópransöngkona frá Þingeyri er áttatíu og fjögurra ára gömul í dag. Hún nam söng og fiðluleik hér heima og í Þýskalandi, hefur haldið tónleika á Íslandi og erlendis en hefur starfað mestmegnis hér heima, hún stjórnaði m.a. Samkór Ísafjarðarsýslu á sínum tíma. Eftir Ágústu liggur…

Afmælisbörn 19. júní 2021

Í dag er eitt tónlistartengt afmælisbarn á skrá Glatkistunnar: Örn Árnason leikari og skemmtikraftur er sextíu og tveggja ára gamall í dag en hann er einnig kunnur söngvari og hefur bæði sungið inn á fjölmargar plötur tengdar leiksýningum auk annars konar platna. Hann hefur til að mynda verið í hlutverki sögumanns og sungið á plötum…

Afmælisbörn 18. júní 2021

Afmælisbörn dagsins eru tvö að þessu sinni: Ólafur Hólm (Einarsson) trymbill er fimmtíu og eins árs gamall í dag. Ólafur hefur um árabil verið trommuleikari hljómsveitarinnar Nýdanskrar en hann hefur leikið með ótal öðrum sveitum, þeirra á meðal eru Todmobile, Tweety, Burkina Faso og Dægurlagacombó Jóns Ólafssonar. Ólafur hefur einnig komið við sögu á plötum…

Afmælisbörn 17. júní 2021

Þrjú afmælisbörn eru á skrá Glatkistunnar á þessum annars ágæta þjóðhátíðardegi Íslendinga: Magnús Stefánsson trommuleikari frá Raufarhöfn er sextíu og tveggja ára gamall í dag. Magnús lék á sínum tíma með mörgum misþekktum hljómsveitum og voru Utangarðsmenn, Egó, Sálin hans Jóns míns, Maó, Skuggar, Tíbet tabú, Jenný og Bodies meðal þeirra. Magnús hefur í seinni…

Afmælisbörn 16. júní 2021

Þrjú afmælisbörn dagsins koma við sögu Glatkistunnar að þessu sinni, þau eru öll látin: Fyrst ber að nefna tónlistarfrumkvöðulinn Olufu Finsen (1836-1908) en hún var landshöfðingjafrú sem bjó hérlendis um tveggja áratuga skeið. Á þeim tíma fór hún mikinn í íslensku tónlistarlífi, stofnaði hér kóra og æfði á heimili sínu, kenndi tónlist og varð aðal…

Afmælisbörn 15. júní 2021

Í dag eru tvö afmælisbörn á listanum: Athafnamaðurinn Sigurjón Sighvatsson (iðulega kallaður Kútur hér áður fyrr) er sextíu og níu ára gamall. Sigurjón var þekktur bassaleikari á tímum bítla og blómabarna og lék þá í hljómsveitum eins og Kjörnum, Mods, Falcon, Flowers, Ævintýri, Brimkló og Þokkabót áður en hann hélt til náms í Bandaríkjunum þar…

Afmælisbörn 14. júní 2021

Fjögur afmælisbörn eru á skrá Glatkistunnar að þessu sinni: Steinunn Harðardóttir er fyrsta afmælisbarnið á listanum en hún er þrjátíu og fjögurra ára gömul í dag. Steinunn hefur verið í hljómsveitum og verkefnum eins og Sparkle poison, Fushigi four og Skelki í bringu en er að sjálfsögðu þekktust sem Dj flugvél og geimskip og hefur…

Afmælisbörn 13. júní 2021

Hvorki fleiri né færri en sex afmælisbörn eru á lista Glatkistunnar í dag: Bjartmar A. Guðlaugsson tónlistarmaður og listmálari er sextíu og níu ára. Bjartmar þekkja allir og lög hans og texta en hann hefur gefið út á annan tug sólóplatna og í félagi við aðra, lög eins og Fimmtán ára á föstu, Sumarliði er…

Afmælisbörn 12. júní 2021

Tvö afmælisbörn eru á skrá Glatkistunnar að þessu sinni: Jakob Smári Magnússon bassaleikari er fimmtíu og sjö ára gamall á þessum degi. Jakob hóf sinn feril með hljómsveitum eins og Tappa tíkarass og Das Kapital en síðar lék hann með Síðan skein sól / SSSól, Grafík, Todmobile og Pláhnetunni svo einungis fáeinar af þeim þekktustu…

Afmælisbörn 11. júní 2021

Í dag eru afmælisbörn Glatkistunnar tvö: Jón Þór Hannesson framleiðandi er sjötíu og sjö ára gamall í dag. Hann hóf sinn tónlistartengda feril með rekstri ólöglegrar útvarpsstöðvar 1962 ásamt Pétri Steingrímssyni og var handtekinn fyrir uppátækið. Jón Þór var einnig í hljómsveitinni Tónum um miðjan sjöunda áratuginn áður en hann sneri sér upptökufræðum, þar sem…

Afmælisbörn 10. júní 2021

Fjögur afmælisbörn koma við sögu hjá Glatkistunni á þessum degi: Hugi Guðmundsson tónskáld er fjörutíu og fjögurra ára gamall í dag, hann nam tónsmíðar hér heima, auk mastersgráða í Danmörku og Hollandi og hefur unnið til ýmissa verðlauna og viðurkenninga fyrir verk sín, m.a. á Íslensku tónlistarverðlaununum í flokki sígildrar og samtímatónlistar. Hugi hefur starfað…

Afmælisbörn 9. júní 2021

Glatkistan hefur þrjú afmælisbörn á skrá í dag sem eitthvað hafa með tónlist að gera: Guðni Már Henningsson útvarpsmaður með meiru, ljóðskáld og tónlistarmaður er sextíu og níu ára í dag. Guðni Már hefur starfað við vinsældir hjá Ríkisútvarpinu í áratugi og hefur náð eins konar trúnaðarsambandi við marga af þeim hlustendum sem hlusta á…

Afmælisbörn 8. júní 2021

Fjögur tónlistartengd afmælisbörn koma við sögu Glatkistunnar í dag: Sindri (Þórsson) Eldon er þrjátíu og fimm ára á þessum degi. Sindri hefur gefið út sólóplötuna Bitter and resentful en hann hefur verið viðloðandi tónlist með einum eða öðrum hætti nánast frá fæðingu, mest í hljómsveitum en þeirra á meðal má nefna Dáðadrengi, Slugs, Desidiu, Dynamo…

Afmælisbörn 7. júní 2021

Í dag eru afmælisbörn á skrá Glatkistunnar tvö talsins en þau eru eftirfarandi: Tvíburabræðurnir Kristinn og Guðlaugur Júníussynir eru fjörutíu og fimm ára gamlir á þessum degi en þeir eru eins og kunnugt er komnir  af mikilli tónlistarfjölskyldu. Þeir bræður hafa mikið unnið saman í tónlist sinni, voru í hljómsveitum eins og Tjalz Gissur, Vinyl…

Afmælisbörn 6. júní 2021

Fimm afmælisbörn eru á lista Glatkistunnar á þessum degi: Bubbi Morthens (Ásbjörn Kristinsson) er sextíu og fimm ára gamall í dag. Honum skaut á stjörnuhimininn með eftirminnilegum hætti 1980 þegar hann spratt fram með hljómsveitinni Utangarðsmönnum og sólóplötu um svipað leyti. Í kjölfarið fylgdu sólóplötur sem skipta um fjórum tugum auk hljómsveita sem flestar hafa…

Afmælisbörn 5. júní 2021

Í dag eru afmælisbörnin átta talsins: Fyrstan skal telja Einar Val Scheving trommuleikara og tónskáld en hann er fjörutíu og átta ára. Einar sem hefur leikið á ógrynni platna annarra tónlistarmanna, hefur einnig starfað með hljómsveitum eins og Stórsveit Reykjavíkur, Atlantshafsbandalaginu, Icelandic All Star Jazzband og Gleðigjöfunum auk margra annarra. Hann hefur gefið út þrjár…

Afmælisbörn 4. júní 2021

Afmælisbörn dagsins á Glatkistunni í dag eru fimm talsins: Jörundur (Arnar) Guðmundsson eftirherma og skemmtikraftur á sjötíu og fjögurra ára afmæli í dag. Jörundur fór mikinn í skemmtanabransanum einkum á áttunda og níunda áratug liðinnar aldar þar sem hann skemmti með eftirhermu- og skemmtiprógrammi sínu um land allt. Hann gaf ennfremur út plötu á sínum…

Afmælisbörn 31. maí 2021

Fimm tónlistartengd afmælisbörn koma við sögu hjá Glatkistunni í dag: Kjartan Valdemarsson píanó- og hljómborðsleikari er fimmtíu og fjögurra ára gamall í dag. Kjartan er fjölhæfur tónlistarmaður og hefur leikið á fjölda poppplatna allt frá árinu 1984 þegar fyrst heyrðist til hans á safnplötum, hann hefur verið í mörgum þekktum hljómsveitum eins og Todmobile en…

Afmælisbörn 29. maí 2021

Í dag eru tvö tónlistartengd afmælisbörn á skrá Glatkistunnar: Dalvíkingurinn Eyþór Ingi Gunnlaugsson söngvari er þrjátíu og tveggja ára gamall í dag. Eyþór er auðvitað þekktastur fyrir framlag sitt til Eurovision söngkeppninnar en eins og alþjóð veit söng hann íslenska framlagið, Ég á líf, vorið 2013. Áður hafði hann vakið athygli í hæfileikakeppninni Bandinu hans…

Afmælisbörn 28. maí 2021

Fjögur afmælisbörn er að finna í gagnagrunni Glatkistunnar í dag: Helgi Pétursson jafnan kenndur við Ríó tríó er sjötíu og tveggja ára gamall í dag. Hann hefur sungið og leikið á kontrabassa með Ríó tríói allt síðan 1965 en hefur einnig fengist við annars konar tónlistartengd verkefni s.s. með Grasösnum sem og á plötum annarra…

Afmælisbörn 27. maí 2021

Þrjú afmælisbörn koma við sögu á afmælislista Glatkistunnar að þessu sinni: Gunnar Ólason söngvari og gítarleikari Skítamórals frá Selfossi er fjörutíu og fimm ára gamall í dag. Auk þess að vera einn af Skímó-liðum hefur hann leikið með sveitum eins og Vinum Sjonna, Galeiðunni, Plasti, Spark, Loðbítlum, Nepal og Poppins flýgur. Auk þess var Gunnar…

Afmælisbörn 26. maí 2021

Fimm afmælisbörn eru á skrá Glatkistunnar í dag: Villi Valli (Vilberg Vilbergsson) hárskeri og tónlistarmaður á Ísafirði er níutíu og eins árs á þessum ágæta degi. Villi Valli, sem upphaflega kemur reyndar frá Flateyri, var mikill djassvakningarmaður á Vestfjörðum og starfrækti margar sveitir sem sérhæfðu sig í þeirri tegund tónlistar, meðal sveita sem hann lék…

Afmælisbörn 25. maí 2021

Þrjú afmælisbörn koma við sögu Glatkistunnar á þessum degi: Kristjana Stefánsdóttir söngkona frá Selfossi er fimmtíu og þriggja ára gömul á þessum degi. Kristjana sem nam söng hér heima og síðar í Hollandi, hefur gefið út nokkrar plötur með djasssöng sínum, ýmis ein eða í félagi við aðra, en hún söng á árum áður með…

Afmælisbörn 24. maí 2021

Afmælisbörn dagsins eru fjögur talsins í dag hjá Glatkistunni: Kristján Jóhannsson tenórsöngvari á sjötíu og þriggja ára afmæli á þessum degi. Kristján hóf sinn söngferil fyrir norðan, nam söng fyrst á Akureyri en síðan í Reykjavík og á Ítalíu, þar sem hann starfaði um árabil en er nú fyrir nokkru fluttur heim til Íslands. Um…

Afmælisbörn 23. maí 2021

Fimm afmælisbörn koma við sögu í dag: Kári Þormar (Kárason) kórstjórnandi og organisti er fimmtíu og þriggja ára gamall í dag. Kári sem í dag er stjórnandi Dómkórsins og organisti kirkjunnar, hefur komið víða við á sínum ferli og starfaði til að mynda við Áskirkju, Fríkirkjuna og víðar. Kári nam orgel- og píanóleik hér heima,…

Afmælisbörn 22. maí 2021

Afmælisbörn dagsins á Glatkistunni eru fimm talsins að þessu sinni: Eva Ásrún Albertsdóttir söngkona er sextíu og tveggja ára gömul í dag. Þótt hún hafi lengstum verið þekktust sem bakraddasöngkona hefur hún sungið með fleiri hljómsveitum en marga grunar, þar má nefna Brunaliðið, Smelli, Chaplin, Módel, Snörurnar og svo í þríeykinu Ernu, Evu, Ernu. Einnig…

Afmælisbörn 21. maí 2021

Fimm afmælisbörn koma við sögu í dag í gagnagrunni Glatkistunnar: Íris Kristinsdóttir söngkona er fjörutíu og sex ára gömul á þessum degi. Íris vakti fyrst athygli með hljómsveitinni Írafári sumarið 1998 en sló síðan í gegn ári síðar sem gestasöngvari með Sálinni hans Jóns míns á frægum órafmögnuðum tónleikum sem gefnir voru út. Síðar söng…

Afmælisbörn 20. maí 2021

Afmælisbarn dagsins er eftirfarandi: Pétur Jónasson gítarleikari er sextíu og tveggja ára gamall á þessum degi. Pétur nam gítarleik fyrst hér heima en fór til framhaldsnáms til Mexíkó, Spánar og víðar, hann hefur haldið fjölda einleikaratónleika víða um heim og í öllum heimsálfum. Ein sólóplata hefur komið út með gítarleik Péturs en hann hefur þó…

Afmælisbörn 19. maí 2021

Í dag eru á skrá Glatkistunnar fimm afmælisbörn: Ólafur Vignir Albertsson píanóleikari er áttatíu og fimm ára gamall á þessum degi, enginn veit hversu oft hann lék undir við „síðasta lag fyrir fréttir“ en mun vera þó vera oftar en nokkur annar. Ólafur nam píanóleik við Tónlistarskólann í Reykjavík en lauk síðan framhaldsnámi í London…

Afmælisbörn 18. maí 2021

Á þessum degi eru tvö tónlistartengd afmælisbörn á skrá Glatkistunnar: Fyrst skal telja söngvarann Sævar Sverrisson en hann er sextíu og fjögurra ára gamall. Sævar hefur sungið með fjöldanum öllum af misþekktum hljómsveitum og  margir muna eftir honum í hljómsveitinni Spilafíflum í kvikmyndinni Rokk í Reykjavík. Meðal annarra sveita sem hann hefur verið í má…