Afmælisbörn 5. júlí 2021

Kristín Lilliendahl

Hvorki fleiri né færri en átta afmælisbörn er að finna í Glatkistunni í dag:

Kristín Lilliendahl söngkona er sextíu og sex ára gömul í dag. Kristín vakti upphaflega athygli í hljómsveitinni Formúla ´71 en síðar var hún annar Söngfuglanna sem gaf út barnaplötu um miðjan áttunda áratuginn og lagið Ég skal mála allan heiminn elsku mamma, naut á sínum mikilla vinsælda. Í kjölfarið kom út jólaplata með Kristínu. Margir þekkja líka lagið Breytir borg um svip sem hún söng áratug síðar með Vísnavinum. Kristín er móðir Gretu Salóme Eurovisionstjörnu.

Valdimar Örn Flygenring tónlistarmaður og leikari er sextíu og tveggja ára gamall í dag. Hann gaf út plötuna Kettlingar, með hljómsveitinni Hendes verden sem hann starfrækti á sínum tíma en hann hefur verið í mörgum hljómsveitum, þeirra á meðal má nefna Menn, Hina konunglegu flugeldarokksveit, Ekki, Tjúttlinga, Ómar og Valda, Óreglu og Hráefni.

Akureyska barnastjarnan Harpa Gunnarsdóttir er fimmtíu og sex ára á þessum degi. Hennar söngferill spannaði ekki langan tíma en út kom fjögurra laga plata með henni á vegum Tónaútgáfunnar á Akureyri þegar hún var aðeins níu ára gömul. Hún söng lítillega opinberlega eftir útgáfu plötunnar en síðan hefur lítið spurst til Hörpu.

Gunnar Guðbjörnsson óperusöngvari er einnig fimmtíu og sex ára. Hann nam söng fyrst hjá Sigurði Demetz en síðar í Bretlandi og Þýskalandi en þar starfaði hann lengi sem og í Frakklandi. Aukinheldur hefur hann sungið ýmis óperu- og sönghlutverk víða um heim sem og hér heima. Út hafa komið plötur með Gunnari hér heima en hann hefur einnig sungið sem gestur á plötum annarra listamanna og á viðburðum eins og Frostrósatónleikum o.þ.h.

Axel Flóvent (Daðason) tónlistarmaður frá Húsavík er tuttugu og sex ára gamall í dag. Axel hefur vakið athygli fyrir tónlist sína og hefur meðal annars komið fram á Iceland Airwaves en hann hefur einnig keppt í Músíktilraunum með hljómsveitum eins og For colorblind people og Functional foundation auk þess að keppa þar sem einstaklingur.

Jón Stefánsson

Jón Stefánsson kórstjóri og organisti (1946-2016) hefði ennfremur átt afmæli á þessum degi en hann stýrði Kór Langholtskirkju í ríflega hálfa öld, frá átján ára aldri. Jón stjórnaði einnig Graduale Nobili, Kammerkór Langholtskirkju og Gradualekór Langholtskirkju auk nokkurra annarra kóra. Tónlistarferill Jóns hófst þó á allt öðrum stað en þá var hann gítarleikari og söngvari í þjóðlagatríói sem bar heitið Hryntríóið.

Mezzosópran-söngkonan Guðrún Þorsteinsdóttir átti þennan afmælisdag einnig en hún lést árið 1990. Guðrún fæddist 1911 á Seyðisfirði, nam söng í Þýskalandi og Svíþjóð og söng svo hér heima í ýmsum óperuuppfærslum og tónleikum. Hún starfaði lengi sem söngkennari og stjórnaði einnig kórum um árabil.

Að síðustu má nefna tenórsöngvarann Hjálmtý (Edward) Hjálmtýsson (1933-2002) sem verður líklega hvað þekktastur fyrir að vera faðir nokkurra þekktra söngsystkina en margir muna einnig eftir honum í hlutverki lögregluþjóns sem söng um astraltertugubb í Stuðmannamyndinni Með allt á hreinu. Hjálmtýr sem nam söng hjá Sigurði Demetz, Maríu Markan og Sigurði Birkis, sendi frá sér fjórtán laga plötu 1980 og einsöng hans má einnig heyra á plötum Skagfirsku söngsveitarinnar en hann var einnig meðlimur í Karlakór Reykjavíkur, Þjóðleikhúskórnum og Pólýfónkórnum.

Vissir þú að hátt í hundrað plötur komu út í Pottþétt safnplötu-seríunni?