Afmælisbörn 4. júlí 2021

Kristján B. Heiðarsson

Glatkistan hefur fimm afmælisbörn á skrá sinni á þessum degi:

Fyrstan skal nefna rokkarann og Eurovision-farann Eirík Hauksson en hann er sextíu og tveggja ára gamall í dag. Eiríkur hefur hin síðustu ár starfað í Noregi og verið þar í hljómsveitum s.s. Artch en hér heima gerði hann garðinn frægan með ýmsum hljómsveitum, Start, Drýsill, Wanted, Þeyr, DP tribute, Amon Ra, Basil fursti, Octopus og Deild 1 eru meðal þeirra en einnig hefur Eiríkur gefið út sólóplötu. Eiríkur hefur þá sérstöðu hérlendis að hafa farið þrívegis í lokakeppni Eurovision, tvisvar fyrir Ísland og einu sinni fyrir Noreg.

Orri Páll Dýrason trommuleikari á einnig afmæli á þessum degi en hann er fjörutíu og fjögurra ára. Orri Páll hefur trommað með ýmsum sveitum svosem Nova, Ske og Wool en þekktust hljómsveita sem hann hefur starfað með er án efa Sigur rós sem allir þekkja. Hann hefur einnig starfað með föður sínum, Dýra Guðmundssyni og systur, Vilborgu Ásu Dýradóttur í hljómsveitinni Dýri Gendos Social Club.

Kristján B. Heiðarsson tónlistarmaður fjörutíu og þriggja ára gamall í dag. Kristján hefur gefið út sólóplötu í þjóðlagastíl en er þekktari sem trommuleikari hljómsveita sem flestar eru í þyngri kantinum. Þeirra á meðal má nefna Changer, Shiva, Dark harvest, Nykur, Obscured signal, Potentiam og Kontinuum.

Þorvaldur Þór Þorvaldsson trommuleikari er fjörutíu og eins árs gamall á þessum degi. Þorvaldur hefur leikið inn á fjölmargar plötur og með fjölda hljómsveita í gegnum tíðina, þeirra á meðal má nefna Í svörtum fötum, Hver er Jónatan?, Groundfloor, Bossanova, Melodikka og Tríó Ómars Guðjónssonar. Hann hefur einnig gefið út sólóefni.

Að lokum skal nefna rímnaskáldið og allsherjargoðann Sveinbjörn Beinteinsson (1924-93) en hann muna margir úr upphafsatriði kvikmyndarinnar Rokk í Reykjavík. Þar kvað hann rímur en einnig er flutning hans á eddukvæðum og öðru tengdu efni að finna á þremur plötum sem komu út með honum, auk nokkurra safnplatna.

Vissir þú að Lögreglukór Reykjavíkur gaf eitt sinn út plötu sem bar titilinn Hæfileg refsing?