Dagar og nætur

Dagar og nætur
(Lag / texti: Jóhann G. Jóhannsson)

viðlag
Dagar, nætur, vikur, mánuðir, ár,
hamingjustundir, gleði, sorg og tár.
Áfram, áfram fetar lífið sinn veg,
er ekki tilveran hreint stórkostleg?

Stundum er bjart í lífi hvers manns
en fyrr en varir vitja sorgir hans.
Við sjáum oft svo sterk dæmi um það
að augnablikið breytir stund og stað.

viðlag

Tíminn er fljót og bátur minn skel
en för mín ræðst af hverju hafna og vel.
Við lifum í dag en á morgun – hver veit,
sérhver dagur – spurning – eilíf leit.

Tímarnir líða, allt er breytingum háð,
öll þróun ræðst af því sem til er sáð.
Í dag þú finnur það sem leitað var að
en svo á morgun kannski glatast það.

viðlag

[á plötunni Björgvin og Ragnhildur – Dagar og nætur]