Fatlafól
(Lag / texti: Magnús Þór Jónsson [Megas])
Ég þekkti einu sinni fatlafól
sem flakkaði um á hjólastól
með bros á vör en berjandi þó lóminn,
hann ók loks í veg fyrir valtara
og varð að klessu – oj bara.
Þeir tóku hann upp með kýttispaða og settu hann beint á sjónminjasafnið.
Fatlafól, fatlafól,
flakkandi um á tíu gíra spítthjólastól,
ók loks í veg fyrir valtara
og varð að klessu – oj bara.
Þeir tóku hann upp með kýttispaða og settu hann beint á sjónminjasafnið.
[m.a. á plötunni Bubbi Morthens – Fingraför]














































