Austurstræti
(Lag / texti: Sigfús Halldórsson / Tómas Guðmundsson)
Nú verður aftur hlýtt og bjart um bæinn,
af bernskuglöðum hlátri strætið ómar,
því vorið kemur sunnan yfir sæinn.
Sjá, sólskinið á gangstéttunum ljómar.
Og daprar sálir söngvar vorsins yngja
og svo er mikill ljóssins undrakraftur,
að jafnvel gamlir símastaurar syngja
í sólskininu og verða grænir aftur.
Og þúsund hjörtu grípur gömul kæti
og gömul hjörtu þrá á ný og sakna.
ó, bernsku vorrar athvarf, Austurstræti,
hve endurminningarnar hjá þér vakna.
[á plötunni Reykjavíkur flugur – ýmsir]














































