Afmælisbörn 7. desember 2018

Tónlistartengd afmælisbörn Glatkistunnar eru þrjú í þetta skipti en þau eru öll látin: Í dag hefði Jórunn Viðar tónskáld átt aldarafmæli en hún lést í fyrra. Jórunn nam tónsmíðar í Þýskalandi, Bandaríkjunum og Austurríki á sínum tíma og samdi fjöldann allan af þekktum lögum s.s. Það á að gefa börnum brauð, Kall sat undir kletti…

Afmælisbörn 6. desember 2018

Fjögur afmælisbörn eru á skrá Glatkistunnar í dag: Grímur Atlason tónlistarmaður og margt annað, er fjörutíu og átta ára gamall á þessum degi. Grímur hefur starfað með ótal hljómsveitum í gegnum tíðina, verið bassaleikari í sveitum eins og Drep, Dr. Gunni, Grjóthruni í Hólshreppi, Unun, Rosebud og Ekki þjóðinni og hefur gegnt stöðu framkvæmdastjóra tónlistarhátíðarinnar…

Afmælisbörn 5. desember 2018

Þá er komið að afmælisbörnum Glatkistunnar en að þessu sinni eru tvö á skrá: Lýður Árnason læknir og tónlistarmaður frá Flateyri er fimmtíu og sex ára gamall, hann hefur komið víða við á tónlistarferli sínum, verið í hljómsveitum á borð við Kartöflumúsunum, Vítamíni, Grjóthruni í Hólahreppi og Göglum svo fáeinar séu nefndar. Hann var einnig…

Afmælisbörn 4. desember 2018

Í dag eru afmælisbörn Glatkistunnar eftirfarandi: Ágúst Fannar Ásgeirsson hljómborðsleikari hljómsveitarinnar Jakobínurínu er tuttugu og átta ára gamall á þessum degi. Jakobínarína vann sér meðal annars til frægðar á sínum tíma að vinna Músíktilraunir (2005) en eftir að sveitin hætti árið 2009 hefur lítið spurst til Ágústs. Hann hefur þó starfað með hljómsveitinni Kosijama. Sigurður…

Afmælisbörn 3. desember 2018

Afmælisbörn dagsins eru tvö á þessum degi: Pétur Östlund trommuleikari er sjötíu og fimm ára í dag, hann lék með mörgum af þekktustu sveitum bítlatímabilsins og eru Hljómar og Óðmenn þeirra þekktastar en einnig með sveitum eins og Hljómsveit Finns Eydal, Hljómsveit Gunnars Ormslev, Musica prima og Útlendingahersveitinni. Hann var síðar kunnari fyrir djasstrommuleik og…

Afmælisbörn 2. desember 2018

Á þessum degi koma tvö afmælisbörn við sögu á Glatkistuvefnum: Tónlistarmaðurinn Toggi (Þorgrímur Haraldsson) er þrjátíu og níu ára, hann hefur gefið út tvær sólóplötur en er e.t.v. þekktastur fyrir að hafa samið lagið Þú komst við hjartað í mér sem bæðir hljómsveitin Hjaltalín og söngvarinn Páll Óskar hafa gert sígilt. Ragnar Sólberg (Rafnsson) eða…

Afmælisbörn 1. desember 2018

Afmælisbörn fullveldisdagsins eru eftirfarandi: Bakkgerðingurinn (Guðmundur) Magni Ásgeirsson söngvari Á móti sól á stórafmæli en hann er fertugur á þessum degi, Magni hefur einnig sungið með hljómsveitum eins og Shape, gefið út sólóplötur og sungið í undankeppnum Eurovision svo eitthvað sé nefnt, Magni hlaut sína fimmtán mínútna alþjóðafrægð þegar hann tók þátt í Rock star…

Afmælisbörn 30. nóvember 2018

Afmælisbörn Glatkistunnar eru fimm á þessum degi: Pálína Vagnsdóttir söngkona frá Bolungarvík er fimmtíu og fjögurra ára gömul, hún er af mikilli tónlistarfjölskyldu frá Bolungarvík, söng m.a. með hljómsveitinni Septu og hefur sungið inn á nokkrar plötur, þar má nefna plötuna Hönd í hönd: uppáhalds lögin hans pabba, sem hún og systkini hennar gáfu út…

Afmælisbörn 29. nóvember 2018

Afmælisbörn Glatkistunnar eru þrjú að þessu sinni: Skáldkonan Didda eða bara Sigurlaug Jónsdóttir er fimmtíu og fjögurra ára gömul á þessum degi. Segja má að hún hafi fyrst vakið athygli fyrir textann við lagið Ó Reykjavík með Vonbrigðum sem var upphafslag kvikmyndarinnar Rokk í Reykjavík en textar hennar hafa birst víðar. Hún gaf á sínum…

Afmælisbörn 28. nóvember 2018

Tvö afmælisbörn í tónlistargeiranum koma við sögu Glatkistunnar að þessum sinni: Páll Jóhannesson einsöngvari og bóndi frá Þverá í Öxnadal er sextíu og átta ára á þessum degi, hann nam söng á Ítalíu á sínum tíma og gaf út tvær einsöngsplötur á níunda áratug síðustu aldar þar sem hann naut m.a. aðstoðar Karlakórsins Geysis og…

Afmælisbörn 27. nóvember 2018

Afmælisbörn dagsins í Glatkistunni eru fimm talsins í dag, flest þeirra eru söngkonur: Björg Þórhallsdóttir sópran söngkona frá Akureyri er fimmtíu og fjögurra ára gömul í dag. Hún hefur sent frá sér þrjár plötur, þar af eina jólaplötu. Björg var bæjarlistamaður Akureyrar árið 2007. Klara Ósk Elíasdóttir, Klara í Nylon, er þrjátíu og þriggja ára…

Afmælisbörn 26. nóvember 2018

Afmælisbörn dagsins eru fimm að þessu sinni: Sveinbjörn B. Thorarensen (Hermigervill) er þrjátíu og fjögurra ára gamall. Hermigervill hefur gefið út nokkrar sóló raftónlistarplötur en hann hefur einkum sérhæft sig í vinna úr eldri tónlist, t.d. gömlum íslenskum dægurlögum í nýjum búningi. Hann hefur unnið með ýmsum tónlistarmönnum hér heima s.s. Retro Stefson, Þórunni Antoníu og…

Ný plata með lögum Jórunnar Viðar

Erla Dóra Vogler söngkona og Eva Þyri Hilmarsdóttir píanóleikari eru um þessar mundir að senda frá sér geislaplötuna Jórunn Viðar – Söngvar, en Jórunn hefði orðið hundrað ára þann 7. desember nk. sem er einmitt opinber útgáfudagur plötunnar og þá standa fyrir dyrum tvennir útgáfutónleikar. Þær Erla Dóra og Eva Þyri hafa síðastliðna mánuði fagnað…

Afmælisbörn 24. nóvember 2018

Nokkrir tónlistarmenn koma við sögu afmælisskrár Glatkistunnar að þessu sinni: Sigurdór Sigurdórsson söngvari á stórafmæli dagsins en hann er áttræður, hann söng með ýmsum danshljómsveitum á sínum tíma s.s. hljómsveitum Svavars Gests og Eyþórs Þorlákssonar. Hann er þó þekktastur fyrir flutning sinn á Þórsmerkurljóðinu sem flestir þekkja undir nafninu María María. Eyþór Arnalds söngvari og…

Afmælisbörn 23. nóvember 2018

Afmælisbörnin í dag eru sex talsins á skrá Glatkistunnar: Erlingur Björnsson (Kristján Erlingur Rafn Björnsson) gítarleikari Hljóma er sjötíu og fjögurra ára gamall á þessum degi. Erlingur varð ungur ein táknmynda bítilæðisins á Íslandi þótt hann væri ekki þeirra mest áberandi. Hann var gítarleikari Hljóma og Thor‘s hammer en hafði áður spilað með Skuggum og…

Afmælisbörn 22. nóvember 2018

Afmælisbörn Glatkistunnar eru tvö að þessu sinni: Hörður Áskelsson kórstjórnandi og organisti er sextíu og fimm ára gamall í dag. Hörður er stofnandi og stjórnandi Mótettukórs Hallgrímskirkju og Schola Cantorum sem hafa gefið út fjölda platna, hann er ennfremur organisti Hallgrímskirkju og hefur leikið á og gefið út plötur einn og í samstarfi við aðra,…

Gleðjist! Fagnið! Dómkórinn flytur Jólaóratoríuna í Hallgrímskirkju

Víða um lönd finnst fólki engin jól koma nema það fái að heyra Jólaóratoríu Jóhanns Sebastíans Bach. Dómkórinn í Reykjavík ætlar að afstýra þeirri tómleikatilfinningu með því að flytja þetta dásamlega verk í Hallgrímskirkju laugardaginn 24. nóvember kl. 17:00. Kórinn fær til liðs við sig tuttugu manna hljómsveit og fjóra einsöngvara: Hallveigu Rúnarsdóttur sópran, Hönnu…

Afmælisbörn 21. nóvember 2018

Sex afmælisbörn eru á skrá Glatkistunnar að þessu sinni: Björk Guðmundsdóttir tónlistarkona er fimmtíu og þriggja ára á þessum degi. Björk hefur fengist við tónlist frá barnsaldri, var þá í hljómsveitum eins og Jam ´80, Exodus og Draumsýn en síðar í sveitum eins og Tappa tíkarrassi, Kukli og Sykurmolunum. Útgáfuferill Bjarkar er einstakur en auk…

Afmælisbörn 20. nóvember 2018

Í dag er eitt tónlistartengt afmælisbarn á skrá Glatkistunnar. Það er tónlistarmaðurinn og tónskáldið Helgi Hrafn Jónsson sem á þrjátíu og níu ára afmæli í dag. Helgi Hrafn kemur af Seltjarnarnesinu þar sem hann steig sínu fyrstu tónlistarspor með hljómsveitinni Bossanova og Lúðrasveit æskunnar en hefur einnig starfað með Aton og fleiri sveitum. Hann nam…

Afmælisbörn 19. nóvember 2018

Fjögur tónlistartengd afmælisbörn eru á skrá Glatkistunnar á þessum degi: Elst afmælisbarna dagsins er Trausti Thorberg Óskarsson gítarleikari en hann er níutíu og eins árs gamall. Trausti lék með ýmsum danshljómsveitum á árum áður, s.s. Krummakvartettnum, Neistum og hljómsveitum Eyþórs Þorlákssonar, Carls Billich og Þóris Jónssonar, auk KK-sextetts en hann var einn af stofnmeðlimum þeirrar…

Afmælisbörn 18. nóvember 2018

Í dag eru tvö afmælisbörn í gagnabanka Glatkistunnar: Þorleifur J. Guðjónsson bassaleikari er sextíu og tveggja ára gamall á þessum degi. Þorleifur hefur starfað í ótal hljómsveitum fyrst sem gítarleikari en síðan á bassa, sumum þekktum en öðrum minna þekktum. Hér eru nefndar nokkrar en þeim fer fjölgandi: KK-band, Egó, Samsara, Strákarnir, Vinir Dóra, Ómar…

Afmælisbörn 17. nóvember 2018

Afmælisbörn dagsins eru fimm að þessu sinni: Gauti Þeyr Másson rappari (Emmsjé Gauti / MC Gauti) er tuttugu og níu ára gamall á þessum degi en hann hefur verið í rappeldlínunni síðan 2002 þegar hann birtist í Rímnaflæði aðeins þrettán ára gamall, hann hefur verið í sveitum eins og 32C og starfað með mörgum öðrum…

Afmælisbörn 16. nóvember 2018

Afmælisbörn dagsins eru fjögur, öll nema eitt þeirra eru farin yfir móðuna miklu: (Vilborg) Ása Dýradóttir bassaleikari hljómsveitarinnar Mammút er stórafmælisbarn dagsins en hún er þrítug á þessum degi. Eins og margir muna sigraði Mammút Músíktilraunir Tónabæjar og Hins hússins vorið 2004 og hefur síðan gefið út fjórar breiðskífur. Næsta afmælisbarn, Jónas Hallgrímsson (1807-45) er…

Afmælisbörn 15. nóvember 2018

Tveir tónlistarmenn koma við afmælissögu Glatkistunnar í dag: Richard Scobie sem helst var þekktur sem söngvari hljómsveitarinnar Rikshaw er fimmtíu og átta ára gamall í dag. Scobie söng einnig með hljómsveitum eins og Spooky boogie, Beaverly brothers, The Boy brigade, Sköllóttu músinni og Loðinni rottu. Hann gaf einnig út sólóefni á sínum tíma og hefur…

Afmælisbörn 14. nóvember 2018

Tveir tónlistarmenn prýða afmælisdagaskrá Glatkistunnar að þessu sinni: Jón Geir Jóhannsson trommuleikari er fjörutíu og þriggja ára gamall í dag. Jón Geir hefur spilað með fleiri þekktum hljómsveitum en flestir aðrir hljóðfæraleikarar, meðal sveita sem hann hefur leikið með eru Skálmöld, Kalk, Bris, Ampop, Sýróp, Klamidía X, Hraun, Trassarnir og Urmull. Þá á Magnús R.…

Afmælisbörn 13. nóvember 2018

Afmælisbörn dagsins eru fjögur að þessu sinni: Ingibjörg Guðjónsdóttir sópran söngkona og kórstjórnandi er fimmtíu og þriggja ára í dag. Hún gaf út plötu með óperuaríum fyrir nokkrum árum og síðar einnig djassskotnu plötuna Ó ó Ingibjörg, ásamt bræðrum sínum, hún hefur aukinheldur sungið inn á nokkrar aðrar plötur. Ingibjörg hefur stjórnað Kvennakór Garðabæjar og…

Afmælisbörn 12. nóvember 2018

Tvö tónlistartengd afmælisbörn dagsins eru eftirfarandi: Natalía Chow Hewlett kórstjórnandi frá Hong Kong er fimmtíu og sex ára gömul á þessum degi, hún hefur stýrt kórum eins og Kvennakór Kópavogs, Englakórnum og Kór Ytri-Njarðvíkurkirkju. Þá á Emilía Björg Óskarsdóttir söngkona (Emilía í Nylon) þrjátíu og fjögurra ára afmæli í dag. Emilía staldraði styst í Nylon-flokknum,…

Afmælisbörn 11. nóvember 2018

Afmælisbörn Glatkistunnar eru fjölmörg á þessum degi: Ásgerður Flosadóttir er sextíu og fjögurra ára gömul í dag. Ásgerður var þekktust fyrir framlag sitt á plötu Samsteypunnar sem út kom 1970 og hafði m.a. að geyma lagið Friður á jörð (Give peace a change). Hún hefur lítið verið viðloðandi tónlist seinni ár. Jóhann Davíð Richardsson trommuleikari…

Afmælisbörn 10. nóvember 2018

Þrjú tónlistartengd afmælisbörn eru á skrá Glatkistunnar að þessu sinni: Gylfi (Viðar) Ægisson söngvari, gítarleikari, sprellari, söngleikjahöfundur, útgefandi, laga- og textasmiður á sjötíu og tveggja ára gamall í dag, hann hefur mest starfað sem sólólistamaður og gefið út fleiri tugi platna sem slíkur en hefur einnig unnið með GRM, Áhöfninni á Halastjörnunni, auk annarra. Kormákur…

Afmælisbörn 9. nóvember 2018

Eitt afmælisbarn kemur við tónlistarsögu Glatkistunnar í dag: Leó (Reynir) Ólason hljómborðsleikari frá Siglufirði er sextíu og þriggja ára gamall á þessum degi, hann hefur komið víða við á hljómsveitaferli sínum og hefur leikið með sveitum eins og Frum, Hendrix, Vönum mönnum og Miðaldamönnum auk fleiri. Leó hefur jafnfram haft veg og vanda af útgáfu…

Afmælisbörn 7. nóvember 2018

Afmælisbörn dagsins eru fimm talsins á skrá Glatkistunnar á þessum degi: Óttarr Ólafur Proppé fyrrverandi alþingismaður og söngvari Ham, Funkstrasse, Rass, Dr. Spock, Drullu o.fl. er fimmtugur í dag og á því stórafmæli dagsins. Margir þekkja hann einnig sem prófessorinn á Diskóeyjunni og enn fleiri muna eftir honum í bakraddahlutverki í Eurovision keppninni með Pollapönkurunum.…

Afmælisbörn 6. nóvember 2018

Í dag eru tvö tónlistartengd afmælisbörn á skrá Glatkistunnar: Jónas Sen er fimmtíu og sex ára gamall í dag. Jónas er píanóleikari, tónskáld og tónlistargagnrýnandi á Fréttablaðinu og hefur fengist við tónlist af ýmsu tagi, hann gaf t.d. út plötu með píanóverkum fyrir um tveimur áratugum og hefur einnig gefið út plötu með söngkonunni Ásgerði…

Afmælisbörn 4. nóvember 2018

Eitt tónlistartengt afmælisbarn er á lista Glatkistunnar í dag: Það er ljóðskáldið Jóhannes (Bjarni Jónasson) úr Kötlum (1899-1972) sem hefði átt afmæli þennan dag. Fjöldi tónlistarfólks hefur í gegnum tíðina fært ljóð Jóhannesar í lagaform og gefið út á plötum, þeirra á meðal má nefna Valgeir Guðjónsson sem reyndar á að baki þrjár plötur byggðar…

Afmælisbörn 3. nóvember 2018

Afmælisbarn dagsins er aðeins eitt að þessu sinni: Ólafur Þór Arnalds tónlistarmaður er þrjátíu og tveggja árs gamall á þessum degi. Ólafur hefur að mestu leyti starfað sjálfstætt tónskáld og tónlistarmaður, gefið út fjöldann allan af plötum og hlotið fyrir þær viðurkenningar en hann hefur einnig leikið á trommur með sveitum eins og Mannamúl, Celestine,…

Afmælisbörn 2. nóvember 2018

Í dag eru afmælisbörn á skrá Glatkistunnar sex talsins: Troels Bendtsen er sjötíu og fimm ára í dag. Troels var einkum þekktur fyrir framlag sitt í Savanna tríóinu og Þremur á palli en báðar sveitirnar nutu vinsælda á sjöunda áratugnum, síðarnefnda sveitin starfaði einkum í nánu samstarfi við Jónas Árnason og leikhúsið en allir þekkja…

Afmælisbörn 1. nóvember 2018

Afmælisbörn dagsins hjá Glatkistunni að þessu sinni eru sex talsins: Jón Sigurbjörnsson söngvari, leikari og hestamaður er níutíu og sex ára í dag. Jón nam leiklist í Bandaríkjunum og samhliða því lærði hann söng. Hann hélt áfram söngnámi á Ítalíu og hér heima en vann þó fyrst og fremst í leiklistinni. Söng hans má heyra…

Afmælisbörn 31. október 2018

Eitt afmælisbarn er á lista Glatkistunnar að þessu sinni: Grétar Geirsson harmonikkuleikari í Áshól er áttatíu og eins árs gamall í dag. Grétar sem er með þekktari harmonikkuleikurum landsins hefur verið framarlega í félagsstarfi þeirra en einnig má heyra leik hans á fjölmörgum plötum s.s. Harmonikkufélags Rangæinga, Karlakórs Rangæinga, Félags harmonikkuunnenda, Sigfúss Ólafssonar, Ara Jónssonar…

Andlát – Árni Ísleifsson (1927-2018)

Árni Ísleifsson tónlistarmaður er látinn, rúmlega níutíu og eins árs gamall. Árni fæddist í Reykjavík þann 18. september 1927. Hann lauk námi við Verzlunarskóla Íslands árið 1946 og nam píanóleik við Tónlistarskólann í Reykjavík, hann var auk þess í einkakennslu hjá Matthildi Matthíasson, Gísla Magnússyni og Rögnvaldi Sigurjónssyni. Hann lauk tónmenntakennaraprófi og kenndi lengi tónlist…

Afmælisbörn 29. október 2018

Að þessu sinni eru tvö afmælisbörn á skrá Glatkistunnar: Þorvaldur Halldórsson söngvari frá Siglufirði er sjötíu og fjögurra ára gamall í dag. Þorvald þekkja auðvitað allir fyrir lagið Á sjó, sem gefið var út 1966 en þá þegar var hann orðinn einn ástsælasti söngvari landsins. Þorvaldur lék á gítar og bassa, og söng með sveitum…

Afmælisbörn 28. október 2018

Afmælisbörn dagsins eru fimm talsins að þessu sinni: Egill Eðvarðsson er sjötíu og eins árs gamall í dag. Egill er kunnastur fyrir störf sín hjá Sjónvarpinu en hann var einnig tónlistarmaður á árum áður, hann lék til að mynda með gjörningasveitinni Combó Þórðar Hall sem vakti mikla athygli á sínum tíma en aðrar hljómsveitir sem…

Afmælisbörn 27. október 2018

Afmælisbörn Glatkistunnar eru fjögur að þessu sinni: Jens Hansson saxófón- og hljómborðsleikari úr Sálinni hans Jóns míns er fimmtíu og fimm ára gamall í dag. Jens vakti fyrst athygli með Das Kapital þar sem hann lék saxófónssólóið í laginu Blindsker en síðar lék hann með hljómsveitum eins og Faraldi, Strákunum, Lost, Klakabandinu, Fínt fyrir þennan…

Afmælisbörn 26. október 2018

Þrjú tónlistartengd afmælisbörn Glatkistunnar að þessu sinni eru: Ragnar Danielsen hjartalæknir og fyrrverandi Stuðmaður er sextíu og sjö ára gamall í dag. Ragnar var einn af þeim sem fyrst skipuðu þá sveit sem síðar var kölluð hljómsveit allra landsmanna, Stuðmenn. Sú útgáfa sveitarinnar sendi löngu síðar frá sér plötu undir nafninu Frummenn en Ragnar hefur…

Afmælisbörn 25. október 2018

Afmælisbörn dagsins eru eftirfarandi: Ingibjörg Þorbergs tónlistarkona er níutíu og eins árs gömul í dag. Ingibjörg kom snemma að tónlist, hún söng t.d. í barnakórnum Sólskinsdeildinni og söng einsöng með honum einhverju sinni. Hún lærði síðan á gítar og píanó, lauk tónmenntakennaraprófi og varð fyrsti Íslendingurinn til að ljúka prófi á klarinettu. Ingibjörg söng fjölmörg…

Afmælisbörn 24. október 2018

Í dag eru tvö afmælisbörn á skrá Glatkistunnar: Karl Ottó Runólfsson tónskáld hefði átt afmæli í dag. Karl fæddist aldamótaárið 1900, nam trompet- og píanóleik, auk þess ljúka námi í hljómsveitaútsetningum og tónsmíðum. Hann var einn af stofnendum Lúðrasveitar Reykjavíkur og stýrði nokkrum lúðrasveitum og danshljómsveitum víða um land, hann sinnti ennfremur tónlistarkennslu en lék…

Afmælisbörn 23. október 2018

Eitt afmælisbarn kemur við sögu Glatkistunnar að þessu sinni: Skúli Sverrisson bassaleikari er fimmtíu og tveggja gamall í dag. Hann hefur starfað og verið með annan fótinn í Bandaríkjunum síðustu árin og gefið út fjöldann allan af sólóplötum frá árunum 1997 en á árum áður starfaði hann í hljómsveitum eins og Pax Vobis, Gömmum og…

Afmælisbörn 22. október 2018

Þrír tónlistarmenn eru á afmælisbarnaskrá Glatkistunnar í dag: Steinn Kárason tónlistarmaður og umhverfishagfræðingur frá Sauðárkróki er sextíu og fjögurra ára á þessum degi. Steinn starfaði á árum áður með hljómsveitunum Djöflahersveitinni og Háspennu lífshættu í Skagafirði en gaf út sólóplötuna Steinn úr djúpinu fyrir fáeinum árum, hann hefur einnig gefið út smáskífu í samstarfi við…

Afmælisbörn 21. október 2018

Þrjú tónlistartengd afmælisbörn eru á skrá Glatkistunnar að þessu sinni: Karl Olgeir Olgeirsson hljómborðsleikari og lagahöfundur frá Akureyri er fjörutíu og sex ára gamall á þessum degi. Hann hefur starfað ýmist í hljóðverum sem upptökumaður eða hljóðfæraleikari en einnig með ýmsum hljómsveitum í gegnum tíðina. Sem dæmi um sveitir sem hann hefur verið í má…

Afmælisbörn 20. október 2018

Afmælisbörn dagsins í dag eru þrjú: Þóra Einarsdóttir sópransöngkona er fjörutíu og sjö ára gömul í dag. Þóra lærði píanóleik og söng hér heima en fór til Englands í framhaldsnám í söng, þar bjó hún um tíma sem og í Svíþjóð og Þýskalandi. Hún hefur sungið á fjölmörgum plötum og óperuhlutverk hennar skipta tugum en…

Afmælisbörn 19. október 2018

Fjögur afmælisbörn eru á skrá hjá Glatkistunni í dag: Guðmundur S. Steingrímsson (Papa Jazz) trommuleikari með meiru er áttatíu og níu ára á þessum degi. Guðmundur lék á sínum tíma með fjöldanum öllum af djass- og danshljómsveitum þess tíma og alltof langt mál yrði að telja þær allar upp en sem dæmi má nefna Unga…