
Jónas Sen
Í dag eru tvö tónlistartengd afmælisbörn á skrá Glatkistunnar:
Jónas Sen er fimmtíu og sex ára gamall í dag. Jónas er píanóleikari, tónskáld og tónlistargagnrýnandi á Fréttablaðinu og hefur fengist við tónlist af ýmsu tagi, hann gaf t.d. út plötu með píanóverkum fyrir um tveimur áratugum og hefur einnig gefið út plötu með söngkonunni Ásgerði Júníusdóttur en hefur í auknum mæli snúið sér að raftónlist, sem m.a. hefur komið út á safnplötum.
Þá hefði Sveinn (Valdemar) Ólafsson tónlistarmaður einnig átt afmæli á þessum degi en hann lést árið 1987. Sveinn (fæddur 1918) sem var menntaður fiðluleikari og lærði síðar bæði á saxófón og lágfiðlu, lék m.a. með Sinfóníuhljómsveit Íslands og strengjasveitinni Fjarkanum auk þess að spila með léttari sveitum eins og Hljómsveit Aage Lorange og Hljómsveit Þóris Jónssonar, var þó öllu þekktari fyrir félagsmálastörf sín í þágu tónlistarinnar en hann var m.a. formaður Félags íslenskra hljómlistarmanna um tíma.