
Stefán Jónsson
Afmælisbörn dagsins eru fjögur að þessu sinni:
Ingibjörg Guðjónsdóttir sópran söngkona og kórstjórnandi er fimmtíu og þriggja ára í dag. Hún gaf út plötu með óperuaríum fyrir nokkrum árum og síðar einnig djassskotnu plötuna Ó ó Ingibjörg, ásamt bræðrum sínum, hún hefur aukinheldur sungið inn á nokkrar aðrar plötur. Ingibjörg hefur stjórnað Kvennakór Garðabæjar og kvennakórnum Seljum sem dæmi.
Arnþór Örlygsson (of kallaður Addi 800) upptökumaður er fjörutíu og átta ára, hann hefur stýrt upptökum, tekið upp og hljóðblandað margar af vinsælustu plötum landsins seinni ára, þar má til dæmis nefna Land og syni, Stuðmenn, Þúsund andlit og Bubba Morthens. Þess má geta að hann lék á gítar með hljómsveitinni Blautum dropum fyrir margt löngu.
Stefán Jónsson eða Stebbi í Lúdó er sjötíu og sex ára gamall á þessum degi. Það nægir að nefna Lúdó sextett svo fólk átti sig á um hvern er að ræða en með þeirri sveit sló Stefán í gegn með lögum eins og Því ekki að taka lífið létt?, Laus og liðugur, Halló Akureyri og Átján rauðar rósir, áður hafði hann einnig sungið um Jóa Jóns með SAS tríóinu. Stefán hefur sungið með ótal sveitum s.s. Sextett Jóns Sigurðssonar, The Robots, Þyrnum og Rokkbræðrum, og sungið inn á fjölda platna.
Matthías Jochumsson ljóðskáld (1835-1920) átti ennfremur afmæli þennan dag, hann orti m.a. ljóðið við þjóðsöng okkar Íslendinga, Lofsöng (Ó, guð vors lands) og ljóðið Minni kvenna (Fósturlandsins freyja) svo dæmi séu tekin.