Seltjarnarnesið
(Lag / texti: Lárus Ingólfsson / Þórbergur Þórðarson)
Seltjarnarnesið er lítið og lágt,
lifa þar fáir og hugsa smátt.
Aldrei líta þeir sumar né sól.
Sál þeirra‘ er blind eins og klerkur í stól.
Aldrei líta þeir sumar né sól.
Sál þeirra‘ er blind eins og klerkur í stól.
Konurnar skvetta úr koppum á tún.
Karlarnir vinda segl við hún.
Draga þeir marhnút í drenginn sinn.
Duus kaupir af þeim málfiskinn.
Draga þeir marhnút í drenginn sinn.
Duus kaupir af þeim málfiskinn.
Kofarnir ramba þar einn og einn.
Ósköp leiðist mér þá að sjá.
Prestkona fæddist í holtinu hér.
Hún giftist manni sem hlær að mér.
Prestkona fæddist í holtinu hér.
Hún giftist manni sem hlær að mér.
Já Seltjarnarnesið er lítið og lágt.
Lifa þar fáir og hugsa smátt.
Á kvöldin heyrast þar kynjahljóð.
Komið þér sælar, jómfrú góð.
Á kvöldin heyrast þar kynjahljóð.
Komið þér sælar, jómfrú góð.
[fleiri en eitt lag eru til við þennan texta]
[m.a. á plötunni Söngkvartettar: útvarpsperlur – ýmsir]