Skjól hjá mér þú átt

Skjól hjá mér þú átt
(Lag og texti: Bubbi Morthens)

Fyrir löngu síðan gekk ég grýttan veginn einn,
gott ef ekki rigndi og í skó mínum var steinn.
Það var komið fram í rökkur og rokið hvæsti hátt,
þá sagði hún og brosti: skjól hjá mér þú átt.

Þegar svartnættið lagðist sálina mína á,
sólin hvarf í sortann og í myrkrinu ég lá
þegar duftið hvíta dró mig neðar smátt og smátt
þá sagði hún og brosti: Skjól hjá mér þú átt.

Aldrei hækkaði hún róminn né reyndi nokkurt sinn
að reka mig út á ísinn heldur kyssti mína kinn.
Sama hvað ég gerði, sama hvað ég lagðist lágt
þá sagði hún og brosti: Skjól hjá mér þú átt.

Einn daginn beið mín lífið og ég lærði það fljótt
að leggja einn á veginn – til þess mig skorti þrótt.
Þar sem ég sat vegmóður og hengdi höfuð lágt
þá sagði hún og brosti: Skjól hjá mér þú átt.

[af plötunni Bubbi Morthens – Sól að morgni]