Elliðaárþula

Elliðaárþula
(Lag og texti: Bubbi Morthens)

Stríðir strumar falla,
stundum er flóð,
þá stekkur fossinn,
finnur sína slóð.

Eitt sinn rann silfurbjört
áin alla leið
eftir dalnum drengur minn.
Draumfull og breið
söng hún sína þulu.
Mörg eru mannanna verkin leið.

Stríðir strumar falla, stundum er flóð.
Fáir rata í fossinn né finna sína slóð.

Þá var hún full af fiski,
fannst í hverjum hyl hrygna
og hængur sem hérna urðu til.
Þá var áin hrein og tær,
vorsins laxi var hún fær.
Engin hindrun, öðru nær.
Þá var hún prýði,
þá var hún dalsins prýði.

Stríðir straumar falla,
stundum er flóð.
Fáir rata í fossinn
né finna sína slóð.

Horfinn er Svuntufoss.
Ullarfoss.
Hefur þú séð þá renna?
Horfinn er Arnarfoss.
Búrfoss.
Hverju er um að kenna?
Mörg eru mannanna verkin leið.
Ekki rennur áin mín lengur greið.
Ekki rennur áin mín lengur greið.

Stríðir strumar fall,
stundum er flóð.

[af plötunni Bubbi Morthens – Sól að morgni]