Sumri hallar
(Lag / texti: þjóðlag / þjóðvísa)
Sumri hallar, hausta fer,
heyri snjallir ýtar,
hafa fjallahnjúkarnir
húfur mjallahvítar.
Girnar allar elfur skjól
undir mjallar þaki,
þorir varla‘ að sýna sól
sig að fjallabaki.
Verður svalt því veðri‘ er breytt,
vina eins er geðið:
þar sem allt var áður heitt
er nú kalt og freðið.
[m.a. á plötunni Savanna tríóið – More folksongs from Iceland]