Loksins ég fann þig

Loksins ég fann þig
Lag / texti: erlent lag / Jón Sigurðsson)

Ég hef allt lífið leitað að þér.
Leitað og spurt, sértu þar eða hér
því ég trúði að til værir þú.
Trúði og ég á þig nú.

Loksins ég fann þig,
líka þú sást mig
ljóminn úr brúnu augunum skein.
Haltu mér fast,
í hjarta þér veistu
að hjá mér er aðeins þú ein.

Sá ég þi fyrst um sólgullið kvöld.
Sá þig og fann að hjá mér tókstu völd.
Því hjá þér ég hvíld finn og frið.
Ferð mín er bundin þig við.

Loksins ég fann þig…

[m.a. á plötunni Karlakór Selfoss – Allt er fertugum fært]