Afmælisbörn 8. maí 2017

Sex afmælisbörn í tónlistarsögu Íslands eru í gagnagrunni Glatkistunnar að þessu sinni: Ari Jónsson söngvari og trommuleikari er sextíu og sjö ára gamall í dag. Auk þess að hafa gefið út sólóplötur og sungið á plötum ýmissa annarra listamanna, hefur Ari sungið og leikið með hljómsveitum á borð við Roof tops, Ómum, Altó, Borgís, Pónik,…

Afmælisbörn 7. maí 2017

Fjögur afmælisbörn eru á skrá Glatkistunnar á þessum ágæta degi: Svavar Lárusson söngvari frá Neskaupstað er áttatíu og sjö ára á þessum degi. Svavar söng inn á fjölmargar 78 snúninga plötur hér á árum áður og meðal laga sem urðu vinsæl með honum má nefna Ég vild‘ ég væri og Hreðavatnsvalsinn. Svavar má með rétta…

Afmælisbörn 6. maí 2017

Afmælisbörn Glatkistunnar eru tvö í dag: Nanna Bryndís Hilmarsdóttir söngkona, gítarleikari og stofnandi hljómsveitarinnar Of monsters and men er tuttugu og átta ára gömul í dag. Nanna Bryndís, sem kemur úr Garði, kom fyrst í stað fram sem trúbador undir nafninu Songbird, hún hafði einnig tekið þátt í söngkeppni framhaldsskólanna og verið í hljómsveitinni Pointless…

Afmælisbörn 5. maí 2017

Þrjú tónlistartengd afmælisbörn koma við sögu Glatkistunnar að þessu sinni: Herbert Viðarsson bassaleikari frá Selfossi er fjörutíu og eins árs gamall á þessum degi. Hebbi er í Skítamórali eins og flestir vita en hann hefur einnig leikið með sveitum eins og Boltabandinu á Selfossi, Boogie knights, Ceres 4, Miðnesi, The Sushi‘s og Kántrýsveitinni Klaufum. Óskar…

Afmælisbörn 4. maí 2017

Afmælisbörn dagsins á Glatkistunni eru fjögur talsins að þessu sinni: Adda Örnólfs (Arnbjörg Auður Örnólfsdóttir) söngkona er áttatíu og tveggja ára á þessum degi en hún er kunnust fyrir upphaflegu útgáfuna af laginum um Bellu símamær. Adda kom upphaflega frá Suðureyri en fluttist á unglingsárunum til höfuðborgarsvæðisins, þar sem hún vakti fljótlega athygli fyrir söng…

Afmælisbörn 3. maí 2017

Fjögur afmælisbörn eru á skrá Glatkistunnar í dag: Ólafur Helgi Helgason trommuleikari er sextíu og tveggja ára á þessum degi en hann var áberandi í poppsveitum áttunda áratugar síðustu aldar. Ólafur lék með hljómsveitum á borð við Dögg, Tilfinningu og Kvintett Ólafs Helgasonar sem síðar hlaut nafnið Tívolí. Helga Marteinsdóttir veitingakona (1893-1979) átti afmæli þennan…

Afmælisbörn 2. maí 2017

Á þessum öðrum degi maímánaðar eru fjögur tónlistartengd afmælisbörn á skrá: Garðar Thór Cortes tenórsöngvari er fjörutíu og þriggja ára gamall í dag. Garðar lærði söng fyrst hér heima en fór að því loknu í framhaldsnám til Austurríkis, Danmerkur og Bretlands. Hann lét fyrst að sér kveða á plötu Samkórs Selfoss árið 1995 og hefur…

Útvarpskórinn (1931-45 / 1947-50)

Þegar talað er um Útvarpskórinn má segja að um tvo aðskilda kóra sé að ræða en tveggja ára hlé var á milli þess sem þeir störfuðu. Útvarpskórinn hinn fyrri var stofnaður fljótlega eftir að Ríkisútvarpið hóf göngu sína en hans er fyrst getið í fjölmiðlum í febrúar 1931. Jón Þórarinsson var að öllum líkindum stofnandi…

Útvarpshljómsveitin (1930-58)

Hljómsveit kennd við Ríkisútvarpið, starfaði við stofnunina í áratugi eða frá upphafsdögum hennar og allt fram til loka sjötta áratugarins. Sveitin gekk lengst af undir nafninu Útvarpshljómsveitin sem var þó rangnefni þar sem hún var svo fáliðuð framan af. Ríkisútvarpið og Tónlistarfélagið í Reykjavík greiddu laun tónlistarmannanna. Upphaflega voru tveir hljóðfæraleikarar ráðnir til stofnunarinnar eða…

Útvarpið [fjölmiðill] (1926-28)

Áður en Ríkisútvarpið tók til starfa 1930 var einkarekin útvarpsstöð starfrækt á Íslandi til tveggja ára. Hlutafélagið H.F. útvarp (st. 1925) sem  Ottó B. Arnar símfræðingur var í forsvari fyrir, hafði fengið einkaleyfi til útvarpsreksturs til fimm eða sjö ára (ekki er alveg ljóst hvort var) en hann hafði kynnst tækninni í Bandaríkjunum. H.F. útvarp…

Útvarpsperlur [safnplöturöð] – Efni á plötum

Guðmundur Guðjónsson – Útvarpsperlur: Guðmundur Guðjónsson Útgefandi: Ríkisútvarpið Útgáfunúmer: RÚV CD 013 Ár: 2005 1. Íslenskt vögguljóð á hörpu 2. Mamma 3. Sumargleði 4. Fagurt er á sumrin 5. Vögguljóð 6. Tómasarhagi 7. Hvað er svo glatt 8. Ó fögur er vor fósturjörð 9. Álfasveinninn 10. Vorsól 11. Ljóð 12. Afmælisvísur 13. Lilja 14. Þá uxu blóm…

Útvarpsperlur [safnplöturöð] (1999-)

Safnplöturöðin Útvarpsperlur var sett á laggirnar á vegum Ríkisútvarpsins en útgáfuröðin hefur að geyma upptökur úr fórum stofnunarinnar frá ýmsum tímum og með ýmsu listafólki. Oft er um að ræða upptökur sem hvergi hafa komið út annars staðar. Útvarpsperlur hafa komið út síðan 1999 og meðal listamanna þar má nefna Guðmund Guðjónsson, Ingibjörgu Þorbergs, Hljómsveit Bjarna…

Útvarpshljómsveitin – Efni á plötum

Útvarpssextettinn í Reykjavík – Kvöldljóð / Vorljóð [78 sn.] Útgefandi: Fálkinn Útgáfunúmer: Columbia DI 1085 Ár: 1933 1. Kvöldljóð 2. Vorljóð Flytjendur: Útvarpssextettinn í Reykjavík – [engar upplýsingar um flytjendur] Útvarpssextettinn í Reykjavík – Haustljóð / Ættjarðarljóð [78 sn.] Útgefandi: Fálkinn Útgáfunúmer: Columbia DI 1086 / DI 1105 Ár: 1933 / 1955 eða 56 1.…

Afmælisbörn 1. maí 2017

Fjögur afmælisbörn dagsins eru á dagskrá Glatkistunnar að þessu sinni: Baldvin Albertsson hljómborðsleikari er þrjátíu og fjögurra ára en hann lék með hljómsveitinni Lokbrá á tíunda áratug síðustu aldar. Lokbrá skildi eftir sig breiðskífuna Army of soundwaves, sem vakti nokkra athygli. Trausti Laufdal Aðalsteinsson er einnig þrjátíu og fjögurra ára en hann starfaði með Baldvini…