Kötturinn sem gufaði upp

Kötturinn sem gufaði upp
(Lag og texti: Ólafur Haukur Símonarson)

Ég átti eitt sinn kött sem að gufaði upp,
já hann hvarf bara svona einn daginn.
Ég vissi aldrei alveg hvað af honum varð
en ég sé hann aldrei ganga um bæinn.

Og svo gufaði hann upp,
og svo gufaði hann upp,
og svo gufaði hann upp
og ég sé hann aldrei meir.

Hann átti aldrei trefil, hann átti aldrei skó
en hann gaf því alls engar gætur.
Hann vafði skýi um hálsinn og skelli, skelli hló
og gantaðist úti allar nætur.

Og svo gufaði hann upp,
og svo gufaði hann upp,
og svo gufaði hann upp
og ég sé hann aldrei meir.

[af plötunni Olga Guðrún Árnadóttir – Eniga meniga]